Umhverfi og samgöngur
Umhverfismál og samgöngur eru mikilvægir málaflokkar í hverju sveitarfélagi og svo er einnig á Akranesi. Skipulags- og umhverfisstofa Akraneskaupstaðar fer með þennan málaflokk innan stjórnsýslunnar og þar vega þungt aðgerðir og umsjón með opnum svæðum, göngu- og hjólastígum, útivistar- og skógræktarsvæðum og ýmis frágangur, ekki síst í hinum nýju hverfum bæjarins. Auk þess er stöðugt unnið að endurbótum og viðhaldi á gangstéttum og götum víða um bæinn. Strætósamgöngur eru á Akranesi og eru þær talsvert mikið notaðar, ekki síst af skólafólki. Akranes er auk þess tengt leiðakerfi Strætó bs. og ganga vagnar á milli Akraness og Reykjavíkur oft á dag.
Í eftirfarandi töflu má finna nánari upplýsingar um þjónustu Akraneskaupstaðar og fleiri aðila varðandi ýmsa málaflokka er tengjast umhverfis- og samgöngumálum á Akranesi. Ef upplýsingarnar sem þú leitar að er ekki að finna hér þá er þér velkomið að hafa samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða senda fyrirspurn á netfangið akranes hjá akranes.is.