Byggingar- og skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar
Byggingar- og skipulagsfulltrúinn á Akranesi fjallar um byggingarleyfisumsóknir sem berast og ályktar um úrlausn þeirra. Byggingarfulltrúi hefur heimild samkvæmt samþykkt um embættisafgreiðslu byggingarfulltrúans á Akranesi nr. 842/2000 til að afgreiða mál sem eru innan ramma skipulags og formlega í lagi. Sé eitthvað athugavert við erindið, sé erindi ekki á skipulögðu svæði eða annað ber byggingarfulltrúi erindið undir skipulags- og umhverfisnefnd. Einnig ber honum að hafa eftirlit með því að byggt sé í samræmi við gildandi skipulag, samkv.skipulagslögum nr. 123/2010. Byggingarfulltrúi annast m.a. úttektir og eftirlit með byggingarframkvæmdum og að farið sé eftir byggingarreglugerð og sér um lóðaskráningu og skráningu fasteignamats samkv. byggingarreglugerð nr. 441/1998.
Síma- og viðtalstímar byggingar- og skipulagsfulltrúa og staðgengils hans:
Runólfur Þór Sigurðsson, byggingar- og skipulagsfulltrúi:
Sími: 433-1051
Símaviðtalstímar eru daglega kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 - 15:30
Viðtalstímar daglega kl. 10:00 – 12:00
Hafdís Sigurþórsdóttir, fulltrúi byggingar- og skipulagsfulltrúa:
Sími: 433-1052
Símaviðtalstímar eru daglega kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 - 15:30
Viðtalstímar daglega kl. 10:00 – 12:00