Útivist og heilsurækt
Fjölbreyttar gönguleiðir
Akranes er góður staður fyrir göngufólk, en í bænum og næsta nágrenni hans má finna fjölbreyttar gönguleiðir sem henta öllum aldurshópum.
Langisandur er ein vinsælasta útivistarperla bæjarbúa og mikið notaður til gönguferða. Gönguferð um sandinn tekur 30-40 mínútur ef gengið er fram og til baka, en þetta fer nokkuð eftir stöðu sjávar og að sjálfsögðu hversu hratt er gengið. Þess má til gamans geta að Langisandur er um 1 km að lengd og því má segja að ganga fram og til baka eftir sandinum sé mjög nálægt hinum ráðlagða hreyfingar-dagskammti sem heilsu- og hollustufræðingar mæla með.
Akrafjall er önnur náttúruperla, formfagurt og án efa eitt frægasta tákn og kennileiti bæjarins. Gönguferðir á Akrafjall eru mikið stundaðar og til er fólk sem fer á fjallið vikulega, jafnvel oftar. Akrafjall og umhverfi þess er sannkölluð paradís fyrir útivistarfólk. Gönguferð á fjallið er tiltölulega auðveld og útsýnið ægifagurt. Fjallið gnæfir eins og útvörður byggðarinnar á Skipaskaga. Það er sporöskjulöguð og formfögur fjallabunga sem stendur á nesinu á milli Hvalfjarðar og Leirárvogs. Nánari upplýsingar um Langasand, Akrafjall og aðra fjölbreytta möguleika til gönguferða á Akranesi má finna á upplýsingavef Akraneskaupstaðar fyrir gesti og ferðamenn, www.visitakranes.is.
Skipulagðar gönguferðir
Á hverju ári er boðið upp á gönguferðir með leiðsögn, oft í tengslum við skipulagða viðburði í bænum, svo sem Hátíð hafsins í júní, Írska daga í júlí og Vökudaga, sem haldnir eru í byrjun nóvember ár hvert. Þá skipuleggur Íþróttabandalag Akraness ýmsar gönguferðir, m.a. árlega Jónsmessugöngu. Ef þig vantar nánari upplýsingar um skipulagðar gönguferðir á Akranesi þá er þér velkomið að hafa samband og senda póst á netfangið info@visitakranes.is.
Námskeið – hreyfing og útivist
Boðið er upp á fjölbreytt námskeið er tengjast útivist og hollri hreyfingu á vegum Íþróttabandalags Akraness og ýmissa aðila. Nánari upplýsingar um framboð námskeiða og möguleika til hreyfingar og útivistar er m.a. að finna á vef Íþróttabandalags Akraness, www.ia.is, eða hjá íþróttafulltrúa ÍA í síma 431 1278. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið info hjá visitakranes.is.