Tómstundir fyrir börn og ungmenni
Fjölskyldustofa Akraneskaupstaðar hefur yfirumsjón með skipulagi og framkvæmd þeirra tómstunda sem í boði eru fyrir börn og ungmenni á Akranesi. Undir sviðið heyra grunnskólar, leikskólar, tónlistarskóli, æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál ásamt forvörnum.
Á vegum Íþróttabandalags Akraness er rekin fjölbreytt íþróttastarfsemi hjá mörgum félögum innan vébanda ÍA. Nánari upplýsingar um starfsemi ÍA er að finna á vef félagsins, www.ia.is eða hjá íþróttafulltrúa í síma 431 1278 eða á netfanginu ia hjá ia.is.
Frá janúar 2008 er félagsaðstaða fyrir ungmenni 13 - 25 ára að Þjóðbraut 1, þar sem Tónlistarskólinn á Akranesi var til húsa um árabil. Þar er m.a. aðstaða til tónleikahalds, ýmis konar leikja, s.s. borðtennis, pool og annarra uppbyggilegra tómstunda fyrir ungt fólk.
Skrifstofa Fjölskyldustofu Akraneskaupstaðar er á Stillholti 16-18 og síminn þar er 433 1000. Starfsmenn sviðsins eru Svala Hreinsdóttir, verkefnisstjóri (svala.hreinsdottir hjá akranes.is) og Helga Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu (helga.gunnarsdottir hjá akranes.is). Verkefnisstjóri æskulýðs- og forvarnarmála er Heiðrún Janusardóttir s. 867-1075, (heidrun hjá akranes.is).