Íþróttabandalag Akraness - ÍA
Á Akranesi er boðið upp á fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem nær til allra aldurshópa. Öll aðstaða til íþróttaiðkunar á Akranesi er afar glæsileg og með því besta sem þekkist á Íslandi, enda iða íþrótta- og tómstundamannvirki bæjarins af lífi frá morgni til kvölds. Miðstöð íþrótta á Akranesi er á Jaðarsbökkum, þar sem finna má m.a. hina glæsilegu fjölnota Akraneshöll, sundlaug, aðalleikvang bæjarins og íþróttahús. Á Jaðarsbökkunum sjálfum eru síðan fjölmargir knattspyrnuvellir sem njóta mikilla vinsælda á sumrin. Við grunnskóla bæjarins eru sparkvellir og víða má finna útivistarsvæði, gönguleiðir og aðra möguleika til hollrar útiveru. Langisandur er vinsæl útivistarparadís, enda má segja að gönguferð um sandinn samsvari hinum ráðlagða dagskammti af hreyfingu og margir ganga á Akrafjall sér til heilsubótar.
Á Akranesi starfar eitt öflugasta íþróttafélag landsins, Íþróttabandalag Akraness. ÍA er bandalag íþróttafélaga á Akranesi og eru aðildarfélögin eftirtalin:
Badminton
Blak
Fimleikar
Golf
Hestamennska
Karate
Keila
Knattspyrna karla
Knattspyrna kvenna
Knattspyrna yngri flokka
Knattspyrnufélagið Kári
Körfuknattleikur
Umf.Skipaskagi
Skotfimi
Sund
Vélhjól
Þjótur
ÍA Trimm
Nánari upplýsingar um starfsemi ÍA má finna á vefsíðu félagsins, www.ia.is en einnig má hafa samband við íþróttafulltrúa félagsins í síma 431-1278.
Annað félagsstarf á Akranesi
Meðal annarra félagasamtaka sem eru með virka starfsemi á Akranesi má nefna:
Skátafélag Akraness
Björgunarfélag Akraness
FEBAN - Félag eldri borgara á Akranesi
Skagaleikflokkurinn
KFUM og KFUK
Innan Akraneskirkju fer fram öflugt safnaðarstarf og þá eru haldnar kaþólskar messur með reglulegu millibili í kapellu Sjúkrahússins á Akranesi. Starfsemi Hvítasunnukirkjunnar er einnig öflug í bænum.