Íþróttir og tómstundir
Akranes er mikill íþrótta- og útivistarbær. Flestir þekkja hina ótrúlegu afrekssögu Skagamanna á knattspyrnuvellinum og fá sveitarfélög á Íslandi geta státað af öðrum eins fjölda þekktra knattspyrnumanna; atvinnumanna, Íslandsmeistara og landsliðsmanna. Þá hefur sundfólk af Skaganum náð frábærum árangri og m.a. keppt á Ólympíuleikum fyrir Íslands hönd. Á Akranesi eru fyrsta flokks aðstæður til hvers konar hreyfingar og útivistar; frábær golfvöllur og fjölbreytt íþróttamannvirki enda eru stundaðar fjölmargar íþróttir á Akranesi og víst er að íbúar bæjarins eru afar meðvitaðir um mikilvægi hreyfingar og hollrar útivistar.
Fjölskyldustofa Akraneskaupstaðar hefur umsjón með þeim málum er lúta að íþróttum og tómstundum í bænum. Undir sviðið heyra grunnskólar, leikskólar, tónlistarskóli, æskulýðs-, tómstunda- og íþróttamál ásamt forvörnum. Ef upplýsingarnar sem þú leitar að er ekki að finna hér þá er þér velkomið að hafa samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða senda fyrirspurn á netfangið akranes hjá akranes.is.