Framkvæmdir
Akraneskaupstaður hefur vaxið ört á undanförnum árum og því hafa margvíslegar framkvæmdir verið áberandi í bænum. Nefna má byggingu nýs leikskóla, tónlistarskóla, bókasafns, Akraneshallar og uppbyggingu nýrra hverfa sem dæmi. Mikið er um framkvæmdir á vegum einkaaðila enda byggjast nýju hverfin ört upp með blandaðri byggð fjölbýlis og einbýlishúsa.
Skipulags- og byggingarmál skipa mikilvægan sess í ört vaxandi bæjarfélagi eins og á Akranesi, þar sem hröð uppbygging nýrra hverfa kallar á skjót en um leið varanleg úrræði. Búa þarf lóðir til bygginga, leggja nýjar götur og ganga frá gangstéttum og umhverfi. Gera þarf ráð fyrir þjónustu skóla og leikskóla og móta umhverfið með þeim hætti að öryggi íbúanna sé tryggt.
Mikilvægt er að vel sé haldið á hvers kyns útboðsmálum vegna framkvæmda á vegum bæjarins og gilda um slík mál skýrar leikreglur. Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar hefur yfirumsjón með öllum framkvæmdum á vegum Akraneskaupstaðar. Undir Framkvæmdastofu heyra, viðhald gatna- og stígakerfis, dýraeftirlit og umsjón með beitarlöndum, umsjón með fasteignum kaupstaðarins og viðhaldi þeirra. Stofan annast einnig undirbúning, verkefnastjórn og eftirlit með framkvæmdum bæjarsjóðs.
Framkvæmdastjóri fer með daglega stjórn stofunnar, samræmir störf og verkefni starfsmanna og ber ábyrgð á verkefnum þess gagnvart bæjarstjóra og framkvæmdaráði.
Útboð á vegum Akraneskaupstaðar
Nánari upplýsingar:
Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar
Stillholt 16 - 18
300 Akranesi
Sími 433 1000
Fax 433 1090
Netfang: akranes hjá akranes.is
Vefur: www.akranes.is
Opnunartími er frá kl. 09:30 - 12:00 og 12:30 - 15:30.
Ef upplýsingarnar sem þú leitar að er ekki að finna hér þá er þér velkomið að hafa samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða senda fyrirspurn á netfangið akranes hjá akranes.is.