Sérdeild
Í Brekkubæjarskóla er starfandi sérdeild fyrir fatlaða nemendur. Nemendur í sérdeild fylgja sínum árgangsbekk eins og kostur er. Sérdeildin þjónustar alla fatlaða nemendur á Akranesi en foreldrar velja hvort börnin þeirra stunda þar nám eða eru í almennum bekk í sínum hverfisskóla.
Lengd viðvera fyrir nemendur í 1.-4. bekk eftir að skóla lýkur er þjónusta sem boðið er upp á við báða grunnskólana. Lengd viðvera er frá því að skóla lýkur til klukkan 17:00.
Lengd viðvera og tómstundastarf er í boði í Þorpinu, Þjóðbraut 13, fyrir fatlaða nemendur í 5.-10. bekk eftir að skóla lýkur. Þjónustan er fyrir fatlaða nemendur sem þurfa gæslu og umönnun eftir að skóla lýkur til klukkan 17:00. Áhersla er lögð á að nemendur geti tekið þátt í og sinnt sínu tómstundarstarfi og íþróttastarfi samhliða lengri viðveru.