ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Lengd viðvera/tómstundastarf fyrir nemendur með fötlun í 5.-10.bekk eftir að skóla lýkur.

Þjónustan er fyrir nemendur sem eru með fötlun sem þurfa gæslu og umönnun eftir að skóla lýkur til klukkan 17:00. Áhersla er lögð á að nemendur geti tekið þátt í og sinnt sínu tómstundastarfi og íþróttastarfi samhliða lengri viðveru. Hægt er að fá frekari upplýsingar um starfið hjá deildarstjóra æskulýðs- og forvarnarmála, netfang ludvik.gunnarsson hjá akranes.is  eða á heimasíðu félagsmiðstöðvarinnar Arnardalur http://www.akranes.is/arnardalur

Hér er hægt að nálgast umsóknareyðublað og gjaldskrá

Þjónusta við börn með fötlun

Skólar. Í leikskólunum eru starfandi sérkennslustjórar sem sjá um skipulag þjónustu við börn með fatlanir og náin samvinna er milli sérkennslustjóra og sérfræðiþjónustu. Þegar kemur að grunnskólagöngu geta foreldrar valið milli þess að barnið stundi nám í almennum bekk eða sérdeild. Sjá umfjöllun um sérdeild á heimasíðunni.

Liðveisla

Unnið skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu.  Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð við að njóta menningar- og félagslífs.  Umsókn um liðveislu kemur frá hinum fatlaða sjálfum, aðstandendum eða svæðisskrifstofu Vesturlands.

Sjá reglur um liðveislu

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008