Dagforeldrar
Þegar foreldrar velja dagforeldri fyrir barn sitt er mikilvægt að þeir kynni sér vel þjónustuna sem í boði er s.s. allan aðbúnað, leikfangakost, hvíldaraðstöðu og leikaðstöðu bæði úti og inni. Foreldrar skulu gera skriflegan samning við dagforeldrið um dvalartíma og gjald fyrir vistunina. Ákvörðun um vistun barnsins er ætíð á ábyrgð foreldra. Um daggæslu barna í heimahúsum gildir reglugerð nr. 907/2005 sem sett var með heimild í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Fjölskylduráð veitir leyfi til gæslu barna í heimahúsum á Akranesi og hefur eftirlit með starfseminni.
Sjá lista yfir starfandi dagforeldra
Nánari upplýsingar:
Fjölskyldustofa Akraneskaupstaðar
Sigrún Gísladóttir
Netfang: sigrun.gisladottir hjá akranes.is
Sími: 433 1000