ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Þjónusta :: Atvinna
Prenta vefsíðu

Öflugt atvinnulíf

 

Atvinnulíf á Akranesi stendur á traustum fótum. Mörg öflug iðnfyrirtæki starfa á Akranesi og á Skaga hefur um áratuga skeið verið rekin umfangsmikil útgerð. Á Akranesi er einnig fjölbreytt þjónusta og verslun. Bæjaryfirvöld á Akranesi leggja sig fram um að skapa atvinnulífinu ákjósanlegt umhverfi þar sem fyrirtæki geta vaxið og dafnað og sífellt er unnið að því að laða ný fyrirtæki og atvinnutækifæri til bæjarins.

Hér má finna upplýsingar um ýmislegt sem tengist atvinnulífinu á Akranesi og þjónustu Akraneskaupstaðar og ýmissa aðila við fyrirtæki og stofnanir í bænum. Hér má einnig finna helstu eyðublöð, bæði á íslensku og erlendum tungumálum og í fyrirtækjaskrá má finna upplýsingar um þau fyrirtæki sem starfrækt eru í bænum. Hægt er með einföldum hætti að nýskrá fyrirtæki, breyta upplýsingum og bæta við skráningum.

Ef upplýsingarnar sem þú leitar að er ekki að finna hér þá er þér velkomið að hafa samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða senda fyrirspurn á netfangið akranes hjá akranes.is.

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008