ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Gott að vita

Heilbrigðisstofnun Vesturlands - sími 432 1000

HVE Akranesi skiptist í sjúkrahús og heilsugæslustöð.

Heilsugæslustöðin veitir almenna heilsugæsluþjónustu fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness og hefur jafnframt forystuhlutverk varðandi heilsuvernd og forvarnarstarf.

Sjúkrahúsið er deildaskipt sjúkrahús. Aðal upptökusvæðið er vestur- og norðvesturhluti landsins.  Veitt er fjölþætt sérfræðiþjónusta með viðbúnaði til móttöku og meðferðar bráðveikra allan sólarhringinn.  Íbúum höfuðborgarsvæðisins og öðrum landsmönnum er í vaxandi mæli boðin sérfræðiþjónusta í tilteknum greinum.

HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir.   Starfsmenn HVE Akranesi eru um 240 talsins. 

Bókasafn Akraness

Bókasafn Akraness er að Dalbraut 1, sími 433 1200.  Í Bókasafni Akraness er til útlána fjölbreytt úrval bóka, tímarita, dagblaða, myndbanda og DVD-diska, tónlist, margmiðlunarefni og tungumálanámskeið á geisladiskum eða hljóðsnældum. 

Allar nánari upplýsingar um Bókasafn Akraness má finna á vefsíðu safnsins, http://www.akranes.is/bokasafn/  

Póstur 

Íslandspóstur, Smiðjuvöllum 30, 300 Akranesi sími 431 1000. Þar er boðin öll almenn póstþjónusta, dreifing böggla og bréfa.

Símaþjónusta 

Síminn
Þú getur flutt gamla númerið með þér hvert á land sem er.  Hins vegar þurfa þeir sem eru í fyrsta skipti að sækja um nýtt símanúmer að sækja um hjá Símanum á Akranesi, í verslun Omnis að Dalbraut 1, sími 540 2115. Símanúmer í aðalþjónustuveri Símans er 800 7000.

Vodafone

Þjónusta Vodafone á Akranesi er hjá Versluninni Model, Þjóðbraut 1 á Akranesi í síma 433 0300.

Hiti og rafmagn 

Orkuveita Reykjavíkur
Akraneskaupstaður er hluthafi í Orkuveitu Reykjavíkur sem sér íbúum Akraneskaupstaðar fyrir bæði hita og rafmagni.  Skrifstofa Orkuveitunnar á Akranesi er á Dalbraut 8. Síminn er 516 6000. Sími í þjónustuveri er 516 6100.

Bankar

Tveir viðskiptabankar hafa starfsstöðvar á Akranesi.

Íslandsbanki hf

Dalbraut 1

300 Akranesi

Sími: 440 4000

Landsbankinn

Þjóðbraut 1

300 Akranesi

Sími: 410 4186

Verslanir og þjónusta

Akranes er langstærsta sveitarfélag Vesturlands og þar er að finna fjölbreytt úrval verslana og þjónustu af ýmsu tagi. Í bænum starfa rótgrónar verslanir og fyrirtæki í bland við velflest helstu verslunar- og þjónustufyrirtæki sem halda úti starfsemi á landsvísu.  Fjölmargar verslanir bjóða alls kyns varning á verðum sem fyllilega standast samkeppni við höfuðborgarsvæðið. Á Akranesi má einnig finna frábæra veitingastaði og úrval matvöruverslana.

Samgöngur

Traustar og öruggar samgöngur eru við Akranes og sem dæmi má nefna að aðeins er um 50 km akstur á milli Akraness og miðborgar Reykjavíkur. Það tekur því að jafnaði aðeins um 40 mínútur að komast þarna á milli og gildir þá einu í hvora áttina er ekið! :)

Strætó bs. hefur um nokkurt skeið haldið úti reglubundnum ferðum á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins og eru farnar allt að 13 ferðir á milli á dag. Þannig tengist Akranes samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins og gerir þannig höfuðborgarbúum kost á að heimsækja Skagann á einfaldan og ódýran máta, auk þess sem þessi samgöngumáti auðveldar Skagamönnum að sækja þjónustu og ýmsa viðburði til Reykjavíkur. Sjá vef www.straeto.is

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008