Skrifstofur Akraneskaupstaðar
Skrifstofur Akraneskaupstaðar eru til húsa að Stillholti 16-18, 1. og 3. hæð.
Á 1. hæð er þjónustuver kaupstaðarins og starfsemi umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Á 3. hæð er bæjarskrifstofa þar sem stjórnsýslu- og fjármálasvið og fjölskyldusvið eru með skrifstofur.
Hlutverk starfsfólks skrifstofanna er að veita bæjarbúum, gestum og starfsfólki stofnana
bæjarins, sem erindi eiga við bæjarkerfið sem besta þjónustu.
Í þjónustuveri á 1. hæð Stillholti 16-18 er m.a. símsvörun, íbúaskráning og almenn upplýsingagjöf.
Jafnframt er þar tekið á móti erindum og umsóknum sem berast til sviða og deilda svo og bæjarstofnana.
Í afgreiðslunni er einnig hægt að nálgast ýmis eyðublöð og upplýsingar.
Síminn á skrifstofum Akraneskaupstaðar um skiptiborð er 433 1000 og faxnúmerið er 433 1090.
Netfang: akranes hjá akranes.is
Opnunartími skrifstofunnar er kl. 09:30 til 12:00 og 12:30 til 15:30.
Afgreiðslutími launadeildar er sem hér segir: