1. gr
Skjaldarmerki Akraneskaupstaðar er: Gotneskur skjöldur með heiðbláum grunni. Þvert yfir miðjan skjöldinn er mynd af Akrafjalli, en þrjár brotnar línur neðar. Efst á skjöldinn er skráð með höfðaletri orðið Akranes.
2. gr. Litir merkisins.
Litur merkisins er blátt, en myndir og letur merkisins er hvítt. Mynd af Akrafjalli, þrjár brotnar línur neðar og höfðaletur er hvítt.
Í Pantone litakerfinu er blái liturinn Pantone 294 C.
Í CMYK litakerfinu: Cyan: 100%. Magneta: 56%, Yellow: 0%, Black: 18%.
Ef merki er notað svarthvítt: 80% svart.
Sjá fskj. 1.
3. gr. Letur merkisins.
Með skjaldarmerki kaupstaðarins í heitinu Akraneskaupstaður , er notuð leturgerðin Optima Roma.
Heitið Akraneskaupstaður er notað sem titill fyrir öll svið, stofnanir og deildir Akraneskaupstaðar.
Skjaldarmerkið með letri er aðgengilegt á vef Akraneskaupstaðar, www. akranes.is og hjá markaðs- og atvinnufulltrúa Akraneskaupstaðar. Stærðarhlutföll leturs og skjaldarmerkis hafa verið fastsett. Sjá fskj. 2.
4. gr. Notkun skjaldarmerkisins með öðrum merkjum.
Skjaldarmerki Akraneskaupstaðar má ekki fella inn í önnur merki, tákn eða letur. Þegar skjaldarmerkið stendur með öðru merki skal fjarlægð frá því að lágmarki vera sem nemur helmingi af breidd skjaldar.
5. gr. Notkun merkisins.
Bæjarstjóri, bæjarfulltrúar og starfsmenn skrifstofa Akraneskaupstaðar noti merkið á bréfum, nafnspjöldum, í útgáfum, auglýsingum og til að auðkenna starfsemi kaupstaðarins. Við gerð stimpla má fella niður útlínur skjaldarins.
5.1. Bréfsefni og nafnspjöld
Á bréfsefni verði skjaldarmerki kaupstaðarins ásamt heitinu Akraneskaupstaður.
Óski stofnanir eftir að nota eigin merki á bréfsefni ber að staðsetja það neðst í hægra horni og skal það vera innan reits sem er í hámarki jafnt skjaldarmerkinu á hæð og 2/3 af heitinu Akraneskaup-staður á breidd. Hið sama gildir um nafnspjöld kjörinna fulltrúa og starfsmanna kaupstaðarins og skal stærð merkis stofnunar vera í sömu hlutföllum og á bréfsefni. Ef stofnanir óska eftir að hafa mynd af starfsmanni á nafnspjöldum skal hún vera fyrir ofan nafn viðkomandi.
5.2. Kynningarefni, auglýsingar og annað útgefið efni.
Í öllu kynningarefni, skýrslum og öðru útgefnu efni frá stofnunum Akraneskaupstaðar á merki kaupstaðarins að vera áberandi á forsíðu og/eða baksíðu. Á auglýsingum skal nota skjaldarmerki kaupstaðarins með heitinu Akraneskaupstaður.
5.3. Vefsíður.
Á vefsíðum stofnana á, með notkun skjaldarmerkisins að koma fram með greinilegum hætti að þær tilheyri Akraneskaupstað. Ekki er gerð krafa um nákvæma staðsetningu merkisins eða útlit að öðru leyti en því að hönnuðum ber að gæta þess að merkið falli vel að heildarútliti sínu og njóti sín vel.
5.4. Skyggnur og (glærur).
Bæjarfulltrúar og starfsmenn noti ávallt merki Akraneskaupstaðar í glærukynningum sem þeir halda fyrir hönd kaupstaðarins. Þeim er heimil notkun á glærugrunni sem aðgengilegur er starfsmönnum. Ekki er gerð krafa um nákvæma staðsetningu merkisins eða útlit að öðru leyti en því að hönnuðum ber að gæta þess að merkið falli vel að heildarútliti og njóti sín vel.
5.5. Byggingar.
Allar byggingar sem hýsa starfsemi kaupstaðarins eiga að vera merktar með skjaldarmerki kaupstaðarins og heiti viðkomandi starfsemi. Merkingar eru á ábyrgð þeirra sem reka fasteignir kaupstaðarins. Merkingarnar skulu vera á áberandi stað til að auðvelda fólki að finna viðkomandi þjónustu.
5.6. Bifreiðar.
Bifreiðar sem eru í notkun á vegum Akraneskaupstaðar og stofnana hennar skulu merktar með skjaldarmerki kaupstaðarins. Einnig er heimilt að setja vefslóð og/eða miðlægt símanúmer þar sem því verður við komið. Merkið skal líma á framhurðir á hvorri hlið bifreiðar, þannig að miðja merkis komi við miðju hurðar og efri brún merkis sé u.þ.b. 5. cm. frá neðri brún hliðarrúðu.
5.7. Fánar, gjafavara og önnur sértilvik.
Á fánum er notað blátt skjaldarmerki miðjað á hvítum feldi. Stærðir fána í notkun hjá Akranes-kaupstað eru 120x180, 140x200 og 90x140. Fánastangir við stofnanir bæjarins eru 7 og 8 metrar. Fánastangir aðrar sem færðar eru milli staða, eru 6 metrar. Borðfánar eru 15 cm. á breidd en 25 cm. á hæð og með bláu kögri.
5.8. Gjafavara o.fl.
Þegar skjaldarmerki kaupstaðarins er notað á gjafavöru kaupstaðarins og annað sem fellur undir hefðbundið prentefni er óhjákvæmilegt að sveigja frá stífum kröfum um litanotkun. Þó er mælst til þess að litir séu sem líkastir því sem tilgreint er í 2. gr. Lögð er áhersla á að skjaldarmerkið fái notið sín með smekklegum hætti eftir því sem við á hverju sinni.
6. gr. Önnur notkun merkisins
Öðrum en bæjarstjóra, bæjarfulltrúum, starfsmönnum og stofnunum Akraneskaupstaðar er óheimilt að nota merki kaupstaðarins, með þeim undantekningum sem hér greinir. Um útlit, liti og letur merkisins gilda sömu reglur og kveðið er á um í grein 1, 2, 3, 4 og 5.2.
6.1. Notkun félagasamtaka
Félög um bæjarmálefni mega, að fengnu leyfi Akraneskaupstaðar nota merki kaupstaðarins ásamt félagsmerki sínu eða greinilegu auðkenni . Sama gildir um félög bæjarstarfsmanna . Akraneskaupstaður getur, hvenær sem er, krafist þess að merki kaupstaðarins sé afmáð úr slíku félagsmerki ef notkun þess kastar rýrð á skjaldarmerkið sjálft eða þykir óheppilegt á annan hátt. Félögum sem koma fram sem félög frá Akranesi í keppni, er heimilt að nota merkið til auðkenningar.
6.2. Notkun á söluvarningi
Óski einstaklingar eða fyrirtæki að framleiða varning með merkinu eða merkið sjálft í einhverju formi og hafa til sölu þarf til þess leyfi Akraneskaupstaðar hverju sinni. Óheimilt er að nota merkið sem hluta af firmamerki eða vörumerki.
Stjórnmálaflokkum er ekki heimilt að nota merkið og óheimilt er með öllu að nota það til stjórn-málaáróðurs.
6.3. Umsóknir um notkun
Umsókn til Akraneskaupstaðar um leyfi til þess að nota skjaldarmerki kaupstaðarins skulu fylgja a.m.k. tvö sýnishorn eða uppdrætti af merkinu eins og á að nota það.
Þannig samþykkt á fundi bæjarráðs Akraness 14. október 2004
Breyting á 3.gr: Felld er niður setningin: Skjaldarmerkið skal annað hvort staðsett framan við texta eða miðjað með texta.
Samþykkt á fundi bæjarráðs Akraness 20. ágúst 2009.
Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri (sign)