ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Stjórnsýslu- og fjármálasvið

30. nóvember 1998

Samþykkt um auglýsingar á mannvirkjum bæjarins

1) Íþróttafélögum er heimilt að setja upp auglýsingar í sölum íþróttamannvirkja, á girðingum sundlaugar á Jaðarsbökkum og umhverfis knattspyrnuvöllinn (aðalleikvang) á Jaðarsbökkum.

Íþróttanefnd  hefur í samráði við rekstrarstjóra eða umsjónaraðila viðkomandi stofnana umsjón með því hvar auglýsingaspjöld eru sett upp og hvaða aðili hafi heimild til að selja auglýsingar.

 

2) Auglýsingar er ekki heimilt að setja utan á hús bæjarins nema í skamman tíma við sérstök tækifæri enda samþykki viðkomandi forstöðumaður slíkt. Merkingar utan á stofnanir bæjarins eru þannig takmarkaðar við upplýsingar um atriði sem lúta að starfsemi þeirra, merki bæjarins eða nauðsynlegar leiðbeiningar.

 

3) Á þeim stöðum sem heimilt er að setja upp auglýsingar skal þess gætt að efni auglýsinganna stangist ekki á við lög, reglur eða stefnu bæjarins t.d. varðandi vímuvarnir. Skiltum skal komið fyrir á þann hátt sem umsjónarmaður stofnunar mælir fyrir um.

 

4) Komi upp vafi hvar setja megi upp auglýsingu eða efni auglýsingar orkar tvímælis sker bæjarstjóri úr um málið.

 

Samþykkt á fundi bæjarráðs 26. nóv. 1998.

 

Akranesi, 30. nóvember 1998.

    
Gísli Gíslason, bæjarstjóri (sign)


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008