Erindisbréf fyrir starfshóp um atvinnumál 1. gr. Bæjarstjórn skipar fimm fulltrúa í starfshóp um atvinnumál (atvinnumálanefnd) kjörtímabilið 2010 – 2014. Bæjarstjórn kýs formann. 2. gr. Starfshópurinn er bæjarráði og bæjarstjórn til ráðgjafar í atvinnumálum og tengdum málum sem snúa að atvinnulífinu á Akranesi og uppbyggingu þess. Starfshópurinn gerir tillögur til bæjarráðs um stefnu og markmið í ofangreindum málaflokkum og hefur eftirlit með því að samþykkt markmið bæjarstjórnar og bæjarráðs í þessum málaflokkum nái fram að ganga. 3. gr. Meðal verkefna starfshópsins er: að gera tillögur að fjárhagsáætlun til bæjarráðs, um þá liði hennar sem falla undir verksvið starfshópsins, að gera tillögur til bæjarráðs um stefnu í málaflokkum starfshópsins (atvinnumálastefnu) og hafa eftirlit með að stefnu bæjaryfirvalda á hverjum tíma sé framfylgt, að gera tillögu til bæjarráðs um gjaldtöku vegna gjaldskyldrar starfsemi sem heyrir undir verksvið starfshópsins, Starfshópur um atvinnumál er jafnframt stjórn Háhita ehf. og annast málefni félagsins í samræmi við samþykktir þess og lög um einkahlutafélög, Nýsköpun og efling atvinnulífsins: að vinna að eflingu fyrirtækja og stofnana sem nú þegar eru á atvinnusvæði Akraness, að hafa forgöngu um uppbyggingu og öflun nýrra atvinnutækifæra, að vinna að stofnun eða flutningi á nýjum fyrirtækjum og stofnunum til Akraness, að annast greiningu upplýsinga um stöðu á vinnumarkaði, íbúasamsetningu o.fl. sem undirstöðu stefnumörkunar í atvinnuþróunarmálum, að vinna að í samvinnu við Vinnumálastofnun að úrræðum í atvinnumálum, að annast samskipti og tillögugerð varðandi almenningssamgöngur á milli Akraness og höfuðborgarsvæðisins og innan landshlutans og gera tillögur til bæjarráðs um fyrirkomulag þeirra mála, að vinna að eflingu samstarfs við hagsmunaaðila á svæðinu í atvinnurekstri, að beita sér fyrir samstarfi fyrirtækja á Akranesi og á Grundartangasvæðinu með eflingu svæðisins og frekari uppbyggingu að leiðarljósi, að annast samstarf við þróunar- og nýsköpunarstofanir í atvinnumálum á Vesturlandi og landsvísu, að skoða og gera tillögu til bæjarráðs um reglur um stuðning við fyrirtæki og frumkvöðla sem vilja koma og hefja starfsemi á Akranesi, að vinna að öðrum þeim verkefnum sem bæjarráð/bæjarstjórn felur starfshópnum 4. gr. Bæjarritari situr fundi starfshópsins með málfrelsi og tillögurétti. Þá getur starfshópurinn boðað aðra þá til fundar sem hún telur þörf á hverju sinni. 5. gr. Starfshópur um atvinnumál heldur að jafnaði fundi einu sinni í mánuði. Aukafundi skal halda eftir þörfum að ákvörðun formanns eða ef a.m.k. þrír nefndarmenn óska þess. 6. gr. Formaður boðar til fundar í samráði við bæjarritara og getur falið honum að annast fundarboðun. Bæjarritari undirbýr fundi starfshóps um atvinnumál í samráði við formann. Starfshópurinn skal halda gerðabók. Um fundarsköp fer eftir samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar eftir því sem við á. Bæjarskrifstofa leggur starfshópunum til fundaraðstöðu og fundarritara, sé þess óskað. Um ritun fundargerða starfshóp um atvinnumál gilda sömu reglur og um ritun fundagerða bæjarstjórnar, sbr. 31. gr. samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar. 7. gr. Formaður starfshópsins er í forsvari fyrir starfshópinn um stefnumótun og ákvarðanir hans eftir því sem við á. Bæjarritari ber ábyrgð á stjórn og rekstri verkefna og málaflokka starfshópsins, þ.m.t. fjármálum, og framkvæmd ákvarðana starfshópsins. 8. gr. Um hæfi kjörinna fulltrúa starfshóps um atvinnumál gilda ákvæði 19. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar. 9. gr. Um þagnarskyldu nefndarmanna og starfsmanna vísast til 37. gr. samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar. 10. gr. Erindisbréf þetta byggist á ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 um verkefni sveitarfélaga og starfsemi nefnda á þeirra vegum, stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og samþykkt fyrir stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar. 11. gr. Þóknun fyrir setu í starfshópnum greiðist samkvæmt reglum Akraneskaupstaðar um þóknanir fyrir nefndarstörf. Erindisbréf þetta hefur verið samþykkt í bæjarráði og staðfest af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar 13. september 2011 og tekur gildi eftir samþykkt bæjarstjórnar.
Akranesi, 13. sept. 2011 Bæjarstjórinn á Akranesi, Árni Múli Jónasson
|