ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Umhverfis- og framkvæmdasvið

22. mars 2011

Samþykkt um kattahald á Akranesi

1. gr.
Almenn ákvæði.
Kattahald er heimilað á Akranesi að fengnu leyfi og uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru í samþykkt þessari. Samkvæmt lögum um dýravernd, nr. 15/1994, fer Umhverfis¬stofnun með eftirlit með framkvæmd þeirra laga.
2. gr.
Stjórnsýsla.
Heilbrigðisnefnd Vesturlands fer með málefni katta og kattahald í Akraneskaupstað samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framkvæmdaráð Akraneskaupstaðar fer með framkvæmd samþykktar þessarar í umboði heilbrigðis¬nefndar og annast Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar framkvæmdina undir yfirumsjón framkvæmdaráðs.
Heimilt er að veita lögráða einstaklingum sem búa í sveitarfélaginu leyfi til kattahalds. Leyfið er bundið við nafn og heimilisfang einstaklings og óheimilt er að framselja það. Leyfið er einnig bundið við þann kött sem sótt er um heimild fyrir hverju sinni.
3. gr.
Merking katta og ormahreinsun.
Þeir sem óska eftir leyfi til kattahalds skulu sækja um það á skrifstofu Akranes¬kaupstaðar, Stillholti 16-18. Við útgáfu leyfis fær umsækjandi afhenda númeraða plötu með skráningarnúmeri kattarins, sem alltaf skal vera í ól um háls kattarins.
Akraneskaupstaður ábyrgðartryggir alla skráða ketti sem greitt er leyfisgjald fyrir hjá viðurkenndu tryggingafélagi. Vátrygging skal ná til alls þess tjóns sem kötturinn kann að valda á mönnum og munum. Iðgjald er innifalið í árgjaldi.
Við skráningu skal eigandi/umráðamaður framvísa vottorði frá dýralækni um örmerkingu eða húðflúrmerkingu, sbr. 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 1077/2004 um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni.
Greiða skal árgjald sem nemur sannanlegum kostnaði vegna skráningar kattarins og eftirlitskostnaði.
Árlega skal kattareigandi framvísa vottorði dýralæknis um að kötturinn hafi verið hreinsaður af spóluormum. Þá skal, ef óskað er, framvísa vottorði dýralæknis um að kötturinn hafi verið hreinsaður af öðrum sníkjudýrum.
4. gr.
Kattahald í fjöleignarhúsum.
Skilyrði fyrir kattahaldi í fjöleignarhúsum er að hlutaðeigandi íbúðareigendur veiti samþykki í samræmi við ákvæði laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús og skal leggja fram skriflegt samþykki þar um við skráningu kattarins.
5. gr.
Ónæði og óþrif af völdum katta.
Eigendum og/eða umráðamönnum ber að gæta þess að kötturinn valdi ekki tjóni, hættu, óþægindum, óþrifum eða raski ró manna. Kattareiganda ber að greiða allan kostnað við að fjarlægja dýrið gerist þess þörf.
6. gr.
Fjöldi katta á heimili.
Óheimilt er að láta kött dvelja lengur en einn mánuð á heimili án þess að sótt sé um leyfi fyrir honum.
Ekki er leyfilegt að hafa fleiri en tvo ketti eldri en þriggja mánaða á sama heimili. Hægt er að veita undanþágu frá þessu ákvæði í sérstökum tilfellum, svo sem ef kettir eru ræktaðir í atvinnuskyni, sbr. reglugerð nr. 1077/2004 um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni.
7. gr.
Kattahald í opinberum stofnunum, matvælafyrirtækjum, matvöruverslunum o.fl.
Óheimilt er að hafa ketti í opinberum stofnunum, skólahúsum, matvöruverslunum eða öðrum þeim stöðum sem tilgreindir eru í fylgiskjali 3 í reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti, matvælafyrirtækjum samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 103/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 825/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli, eða vatnsveitum, vatnsbólum og verndarsvæðum þeirra, brunnum og sjóveitum.
8. gr.
Handsömun katta.
Framkvæmdastofu er heimilt að láta fanga ómerkta ketti.  Meiriháttar föngun katta skal auglýst með a.m.k. viku fyrirvara. Kettir sem fangaðir eru skulu færðir í kattageymslu sveitarfélagsins. Ef eigandi vitjar ekki kattarins innan sjö sólarhringa er heimilt að aflífa köttinn án frekari fyrirvara, sbr. þó ákvæði 8. gr. reglugerðar nr. 1077/2004, um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni. Sé kvartað undan ágangi katta í sveitarfélaginu er dýraeftirlitsmanni heimilt að veiða í búr og aflífa ómerkta ketti án þess að það sé auglýst sérstaklega, sbr. þó ákvæði 8. gr. reglugerðar nr. 1077/2004.
Ef merktir kettir sem lenda á flækingi eru handsamaðir af dýraeftirlitsmanni skal hann strax hafa samband við skráðan eiganda sem fær köttinn afhentan gegn greiðslu áfallins kostnaðar. Hafi kattarins ekki verið vitjað innan sjö sólarhringa af réttum eiganda og hann greitt áfallinn kostnað vegna handsömunar og vörslu dýrsins, skal dýrinu lógað.
9. gr.
Dýraeftirlitsmaður.
Fyrir hönd bæjarstjórnar annast dýraeftirlitsmaður framkvæmd og eftirlit með kattahaldi á Akranesi. Dýraeftirlitsmaður starfar undir eftirliti og á ábyrgð heilbrigðisnefndar við sín eftirlitsstörf. Eftirlitsmaður getur leitað aðstoðar lögreglu við framkvæmd starfa sinna, ef köttur er að mati eftirlitsmanns hættulegur umhverfi sínu og/eða vörsluaðili kattarins hindrar starf eftirlitsmanns samkvæmt samþykkt þessari og almannahagsmunir og/eða heilbrigðissjónarmið valda því að nauðsynlegt er að leita atbeina lögreglu við að fjarlægja dýrið.
10. gr.
Gjaldtaka
.
Gjald samkvæmt 4. mgr. 3. gr. og 2. mgr. 8. gr. skal greitt samkvæmt gjaldskrá sem sveitarfélagið setur að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar og í samræmi við ákvæði 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Sveitarfélagið skal láta birta gjaldskrána í B-deild Stjórnartíðinda.
11. gr.
Kæruheimild.
Um kæruheimild fer samkvæmt VII. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng-unarvarnir.
12. gr.
Viðurlög.
Um valdsvið og þvingunarúrræði vísast til VI. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Brot gegn samþykkt þessari varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi laga, nema þyngri refsing liggi við sam¬kvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
13. gr.
Lagastoð.
Framangreind samþykkt bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar staðfestist hér með samkvæmt ákvæðum 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast gildi þann 1. janúar 2011. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt nr. 781/2010 um kattahald á Akranesi.

Samþykkt í bæjarstjórn Akraness 22. mars 2011.
____________________
Árni Múli Jónasson
bæjarstjóri (sign)


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008