Reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til aðila skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995
1. gr. Bæjarstjórn Akraness er heimilt að veita styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar,- íþrótta,- æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf sbr. heimild í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
2. gr. Rétt til styrks eiga aðilar sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) eru fasteignaeigendur á Akranesi b) reka starfsemi sína í húsnæðinu sbr. 1. gr. reglna þessara, með þeim undantekningum sem greinir í 3. gr. c) starfsemin skal vera á sviði menningar, íþrótta, æskulýðs- og tómstunda og mannúðarstarfa sem er rekin í almannaþágu eða í þágu æskulýðs d) um mannúðarsamtök gildir að góðgerðarstarfsemi verður að meginstefnu að vera unnin í sjálfboðavinnu og ná út fyrir raðir þeirra, s.s. í formi styrkja, gjafa eða stuðnings fyrir almannaheill og samfélagið e) njóti starfsemin annarra rekstrarstyrkja frá Akraneskaupstað eða ígildi þeirra, skal tekið tillit til þess við úthlutun styrkja til greiðslu fasteignaskatts f) starfsemin má ekki vera rekin í ágóðaskyni en heimilt er að innheimta tímabundnar tekjur fyrir notkun , sbr. þó 3. gr. reglna þessara.
3. gr. Styrkur til greiðslu fasteignaskatts skal nema allt að álögðum fasteignaskatti. Nú eru fasteignir þær sem um ræðir í 1. og 2. gr. jafnframt notaðar til annars en að framan greinir, svo sem til veitinga- eða verslunarreksturs eða til íbúðar fyrir aðra en húsverði og skal þá leggja og innheimta fasteignaskatt í réttu hlutfalli við slík afnot. Sé húsnæðið leigt út ótímabundið eða hluti þess í fastri útleigu skal styrkveiting takmarkast hlutfallslega sem því svarar. Ef um fleiri en einn eiganda er að ræða að eign, sem ekki uppfylla skilyrði reglna þessara, er veittur styrkur til þeirra sem uppfylla skilyrði reglnanna, í samræmi við eignarhluta þeirra.
4. gr. Fjármálastjóri hefur umsjón með framkvæmd þessara reglna og gerir tillögu til bæjarráðs um úthlutun styrkja á grundvelli umsókna sem falla undir reglurnar. Aðila er heimilt að óska eftir endurupptöku máls skv. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 ef hann telur ákvörðun hafa byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða að íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hafi byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
5. gr. Sækja skal um styrk til greiðslu fasteignaskatts á eyðublöðum sem liggja frammi í þjónustuveri Akraneskaupstaðar. Með umsókn um styrki skal fylgja ársreikningur sl. rekstrarárs, lög félagsins, þar sem það á við, þar sem fram koma markmið þess og stutt greinargerð um starfsemina.
6. gr. Bæjarstjórn Akraness endurskoðar þessar reglur í desember ár hvert.
Sækja umsóknareyðublað
|