ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Fjölskyldusvið

13. mars 2012

Reglur um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur á Akranesi

I. kafli.
Ráðgjöf um húsnæðismál
Skilgreiningar
1. gr.
Ráðgjöf
Þeir sem óska eftir ráðgjöf, upplýsingum eða stuðningi varðandi húsnæðismál skulu leita til Fjölskyldustofu Akraneskaupstaðar1) með hliðsjón af lögheimili hvers og eins.
1). Gildistaka 1. janúar 2009.
2. gr.
Stuðningur í húsnæðismálum
Starfsmenn skulu veita upplýsingar um þann stuðning í húsnæðismálum sem Akraneskaupstaður hefur umsjón með. Eftirfarandi er yfirlit yfir þann stuðning sem kann að vera í boði með hliðsjón af aðstæðum hvers og eins.
 Almennar húsaleigubætur
 Sérstakar húsaleigubætur
 Félagslegt leiguhúsnæði
3. gr.
Skilgreiningar
Félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur eru ætlaðar þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og annarra félagslegra erfiðleika. Aðstæður umsækjenda eru metnar út frá ákveðnum viðmiðum, sbr. 6. gr. og 7.gr.
Með félagslegri leiguíbúð er átt við hverja þá íbúð í eigu Akraneskaupstaðar sem skilgreind er sem leiguíbúð til félagslegra nota.
Sérstakar húsaleigubætur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu á almennum markaði eða í félagslegu leiguhúsnæði og þjónustuíbúðum í eigu Akraneskaupstaðar, umfram almennar húsaleigubætur.
II. kafli
Mat á aðstæðum umsækjanda
4. gr.
Skilyrði fyrir því að umsókn verði metin gild
Við vinnslu umsóknar skal leita upplýsinga m.a. um félagslegar aðstæður, lögheimili, tekjur og eignir. Umsækjandi þarf að uppfylla öll eftirfarandi skilyrði til að umsókn öðlist gildi.

a) Umsækjandi hafi að mati ráðgjafa ekki möguleika á því að kaupa eigið húsnæði.
b) Umsækjandi eigi lögheimili á Akranesi þegar sótt er um og a.m.k. síðustu 3 árin samfleytt áður en umsókn berst.
c) Frá og með 1. janúar 2013 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr. reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur, nr 873/2001, eftirfarandi:  Eignamörk eru kr. 4.379.000.- 1). Tekjumörk eru kr.4.057.000.- 1) fyrir einstakling en kr. 5.681.000.- 1) fyrir hjón og sambúðarfólk, auk þess kr. 697.000.- 1)  fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu. Tekjumörk eru miðuð við meðaltal tekna sl. 3 ár. Heimilt er að taka tillit til skuldastöðu/greiðslubyrði umsækjanda.
1)Við útreikninga á tekju- og eignamörkum er miðað við hækkun á neysluverðsvísitölu frá ársbyrjun 2012 til ársbyrjunar 2013. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu  Íslands nemur hækkunin 4,2%.
d) Umsækjendur verða að skora að lágmarki 4 stig vegna félagslegra aðstæðna sinna, þ.e. 2 stig vegna húsnæðisstöðu og 2 stig vegna félagslegs vanda umsækjanda eða sérstakra aðstæðna barna sbr. matsviðmið (sjá fylgiskjal 1).
e) Umsækjendur skulu vera orðnir 18 ára á umsóknardegi.
Hafi viðeigandi gögn ekki borist 30 dögum frá umsóknardegi fellur umsókn úr gildi.
Umsækjandi fær sent skriflegt svar þar sem fram kemur hvernig umsókn hans hafi verið metin.
5. gr.
Undanþágur frá skilyrðum
Heimilt er að veita undanþágu frá skilyrðum 4. gr. um lögheimili og tekjuviðmið við eftirfarandi aðstæður:
Frá lögheimili:
a) Umsækjandi hefur búið á Akranesi stóran hluta ævi sinnar en flutt tímabundið úr sveitarfélaginu vegna húsnæðisvanda, náms eða vinnu.
Frá lögheimili og/eða tekjuviðmiði:
b) Umsækjandi er samkvæmt faglegu mati ráðgjafa í mjög miklum félagslegum erfiðleikum, sbr. liður 5 c í matsviðmiði sbr. fylgiskjal 1.
Umsóknir um undanþágur skulu vera skriflegar þar sem gerð er grein fyrir ástæðu undanþágubeiðni. Umsóknir um undanþágu skulu afgreiddar hjá Fjölskyldustofu Akraneskaupstaðar.
6. gr.
Forgangsröðun umsókna
Fullnægi umsækjandi skilyrðum 4. gr. raðast umsóknir í forgangsröð eftir ákveðnum matsviðmiðum sbr. fylgiskjal 1, þar sem m.a. er höfð hliðsjón af núverandi húsnæðisaðstæðum, heilsufari, félagslegum aðstæðum og tekjum. Við lok greiningar eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Útkoman er skráð á biðlista sem hafður er til hliðsjónar við úthlutun húsnæðis.
III. Kafli
Sérstakar húsaleigubætur
7. gr.
Skilyrði
Þegar fyrir liggur að umsækjandi fullnægir skilyrðum 4. gr. þessara reglna, skilyrðum laga nr. 138/1997 um greiðslu húsaleigubóta og að auki eftirtöldum skilyrðum má bjóða viðkomandi sérstakar húsaleigubætur.
a) Einstaklingur/hjón/sambúðarfólk: Aðstæður umsækjenda verða að vera metnar til 9 stiga eða meira.
b) Einstaklingur/hjón/sambúðarfólk með eitt barn: Aðstæður umsækjenda verða að vera metnar til 11 stiga eða meira.
c) Einstaklingur/hjón/sambúðarfólk með tvö börn eða fleiri: Aðstæður umsækjenda verða að vera metnar til 12 stiga eða meira.
8. gr.
Fjárhæð
Sérstakar húsaleigubætur eru reiknaðar sem ákveðið hlutfall af almennum húsaleigubótum þannig að fyrir hverjar kr. 1.000 fær leigjandi kr. 1.300 í sérstakar húsaleigubætur. Þó geta húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur aldrei numið hærri fjárhæð en samtals kr. 70.000 og aldrei farið yfir 70%1 ) af leigufjárhæð.
Leigutaki greiði þó að lágmarki kr. 40.0001) í húsaleigu að frádregnum almennum og sérstökum húsaleigubótum.
Ef leigufjárhæð er lægri en kr. 60.000 á mánuði geta greiðslur húsaleigubóta og sérstakra húsaleigubóta ekki farið yfir 60% af leigufjárhæð.
Framangreind fjárhæð, kr. 60.000 er bundin vísitölu neysluverðs og breytingar á henni taka gildi samhliða breytingum á húsaleigu hjá Akraneskaupstað.
1) Breytingar samþykktar 13. mars 2012.
9. gr.
Valkostir
Þegar fyrir liggur að umsækjandi fullnægir skilyrðum 7. gr. um sérstakar húsaleigubætur verður honum sent bréf þar sem honum er boðið að velja á milli eftirfarandi:
a) sérstakar húsaleigubætur, finni hann leiguhúsnæði á almennum markaði á Akranesi.
b) að umsókn hans raðist á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði.
Ákveði umsækjandi að þiggja sérstakar húsaleigubætur hefur viðkomandi þrjá mánuði frá dagsetningu bréfsins til þess að finna sér leiguhúsnæði á almennum markaði á Akranesi.
10. gr.
Úthlutun sérstakra húsaleigubóta
Umsókn fellur af biðlista um félagslegt leiguhúsnæði um leið og greiðsla sérstakra húsaleigubóta hefst nema umsækjandi óski sérstaklega eftir því að umsókn hans um félagslegt húsnæði gildi áfram.
IV. Kafli
Biðtími
11. gr.
Almenn skilyrði
Umsækjandi verður að fullnægja skilyrðum 4. gr. allt það tímabil sem líður frá umsóknardegi fram að úthlutun leiguhúsnæðis/greiðslu sérstakra húsaleigubóta.
12. gr.
Endurnýjun umsókna
Til þess að viðhalda gildi umsóknar þarf umsækjandi að endurnýja umsókn innan 12 mánaða frá umsóknardegi og síðan á 12 mánaða fresti frá þeim degi. Endurnýjun getur hvort heldur er verið skrifleg eða munnleg.
13. gr.
Upplýsingar um aðstæður
Umsækjandi skal vera í tengslum við ráðgjafa sinn á biðtímanum og gera grein fyrir breytingum sem orðið hafa á aðstæðum hans og áhrif kunna að hafa á fyrirliggjandi mat á þeim.
14. gr.
Ráðgjöf á biðtíma
Ráðgjafi  skal veita umsækjanda upplýsingar um stöðu á biðlista, endurmeta aðstæður og veita félagslega ráðgjöf ef þurfa þykir.
V. kafli.
Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis
15. gr.
Úthlutun
Úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis fer fram á fundum félagsmálaráðs Akraness.
Ákvörðun um úthlutun húsnæðis er tilkynnt umsækjanda skriflega.
Ákvörðun um úthlutun er stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
16. gr.
Stærð og gerð húsnæðis
Við mat á stærð og gerð húsnæðis sem kemur til úthlutunar, er höfð hliðsjón af fjölskyldustærð umsækjanda og öðrum aðstæðum sem máli kunna að skipta.
17. gr.
Tilkynning um úthlutun
Þeir, sem fengið hafa úthlutað leiguhúsnæði fá sent bréf þar um, þar sem viðkomandi er m.a. bent á að snúa sér til Framkvæmdastofu  Akraneskaupstaðar til þess að skoða húsnæðið og til frágangs leigusamnings.
Veittur er 10 daga frestur til þess að tilkynna hvort húsnæði er þegið eða ekki.
Hafi viðkomandi ítrekað hafnað leiguhúsnæði án þess að málefnalegar ástæður liggi að baki er heimilt að senda viðkomandi bréf þess efnis að litið sé svo á að umsækjandi hafi dregið umsókn sína til baka og sé hún því úr gildi fallin. Rétt þykir að miða við að viðkomandi hafi þrisvar sinnum hafnað leiguhúsnæði, varðandi mat á ítrekaðri höfnun. Talið er að lagalegri skyldu til útvegunar húsnæðis sé fullnægt skv. XII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og þar sem húsnæði hafi  ítrekað verið hafnað verði að álykta sem svo að viðkomandi geti sjálfur ráðið úr húsnæðisvanda sínum og því umsókn dregin til baka.
18. gr.
Leigusamningar, ákvörðun húsaleigu, innheimta leigu og umsjón fasteigna
Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar sér um frágang leigusamninga og um þá gilda ákvæði húsaleigulaga nr. 36/1994. Tekið skal fram í leigusamningi að um réttarsamband leigutaka og Akraneskaupstaðar gildi ákvæði húsaleigulaga nr. 36/1994 en afskiptum félagsmálaráðs Akraneskaupstaðar sem stjórnvalds sé lokið.
Í leigusamningi skal kveðið skýrt á um það að leigutaka sé óheimilt að heimila öðrum afnot af hinu leigða húsnæði.
Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar gerir tillögu til bæjarráðs um upphæð húsaleigu í félagslegu leiguhúsnæði á Akranesi.
Innheimta leigugjalds, umsjón og viðhald leiguíbúða er á vegum Framkvæmdastofu Akraneskaupstaðar.
Leigutaka er skylt að nota þjónustu banka/sparisjóða varðandi greiðsludreifingu og gera þannig ráð fyrir greiðslu húsaleigu í mánaðarlegri þjónustu.
Tryggingafé
Undir öllum kringumstæðum skal leigutaki greiða tryggingafé sem nemur þriggja mánaða leigu íbúðarinnar. Félagsmálaráði skal þó heimilt í undantekningartilfellum að leggja fram tryggingu fyrir leigu vegna leigutaka. Vanskil á leigu umfram þriggja mánaða leigufjárhæð skulu jafngilda uppsögn á leigusamningi.  Ákvæði þess efnis skal geta í leigusamningi á milli aðila.
19. gr.
Milliflutningar
Óski leigjandi eftir flutningi úr núverandi leiguhúsnæði í annað húsnæði á vegum Akraneskaupstaðar skal hann leggja fram skriflega umsókn. Kanna skal hvort umsækjandi fullnægi skilyrðum liðar a, b og c  4. gr.
Milliflutningsumsóknir raðast út frá greiningu (sbr. fskj. 2) þar sem eftirfarandi þættir eru m.a. hafðir til viðmiðunar: Núverandi húsnæðisaðstæður, fjölskyldustærð, heilsufar og aldur umsóknar. Við lok greiningar eru reiknaðir punktar fyrir hvern þátt fyrir sig. Útkoman er skráð á biðlista sem hafður er til hliðsjónar við úthlutun húsnæðis.
Sé leigjandi í vanskilum með leigugreiðslu við Akraneskaupstað kemur umsókn um milliflutning því aðeins til skoðunar að leigjandi hafi gert full skil á vangoldnum leigugreiðslum eða um skuldina samið.
Umsækjandi fær sent skriflegt svar þar sem fram kemur að hann eigi gilda umsókn um milliflutning, og hvernig umsókn hans hafi verið metin. Þá skal umsækjanda og gerð grein fyrir nauðsyn endurnýjunar umsóknar sbr. 12. gr.
VI. kafli.
Endurskoðun
20. gr.
Endurskoðun leigusamnings
Leigjandi verður að fullnægja skilyrðum 4. gr. b og c allt það tímabil sem leigusamningur gildir. Á leigutímanum mun Akraneskaupstaður gera athugun á því hvort leigutaki fullnægi skilyrðunum. Ef þeim er ekki lengur fullnægt er heimilt að segja leigusamningi upp. Ákvörðun um uppsögn leigusamnings er stjórnvaldsákvörðun í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Leigjandi/leigjendur undirrita sérstaka yfirlýsingu þess efns að þeir heimili starfsmönnum að afla upplýsinga um tekjur og eignir úr opinberum skrám á leigutímanum.
Leigjandi sem hefur gengið í hjúskap eða hafið sambúð á leigutímanum er skuldbundinn til þess að tilkynna Fjölskyldustofu þar um enda forsendur leigjanda aðrar en þegar að úthlutun kom. Starfsmenn munu kanna árlega samkvæmt upplýsingum þjóðskrár hvort aðstæður leigjanda hafi breyst að þessu leyti. Í kjölfarið verður haft samband við leigjanda og félagslegar aðstæður kannaðar í heild sinni. Ef félagslegar aðstæður leigjanda falla ekki lengur að skilyrðum þessara reglna leiðir það til uppsagnar húsaleigusamnings með löglegum fyrivara.
Réttur Akraneskaupstaðar til uppsagnar leigusamnings er bundinn við þau tilvik þegar leigutaki hefur brotið gegn ákvæðum leigusamnings eða ákvæðum húsaleigulaga nr. 36/1994 að öðru leyti.
21. gr.
Endurskoðun greiðslna sérstakra húsaleigubóta
Viðtakandi sérstakra húsaleigubóta verður að fullnægja skilyrðum 4. gr. b og c allt það tímabil sem leigusamningur gildir.
Á leigutímanum fer fram regluleg könnun á því hvort leigutaki fullnægi settum skilyrðum varðandi greiðslu sérstakra húsaleigubóta. Ef skilyrðum er ekki lengur fullnægt verður greiðslu sérstakra húsaleigubóta hætt.

VII. kafli
Málsmeðferð
sbr. ákvæði XVI og XVII. kafla
laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og ákvæði laga um húsaleigubætur nr. 138/1997.
22. gr.
Könnun á aðstæðum
Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn hefur borist.
23. gr.
Samvinna við umsækjanda
Öflun gagna og upplýsinga skal unnin í samvinnu við umsækjanda. Við meðferð umsóknar og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, að öðrum kosti umboðsmann hans ef við á. Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði.
24. gr.
Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum
Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi.
Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.
25. gr.
Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum
Starfmenn Fjölskyldustofu Akraneskaupstaðar taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði félagsmálaráðs Akraneskaupstaðar og starfsmenn Framkvæmdastofu  Akraneskaupstaðar í umboði stjórnar Framkvæmdastofu.
26. gr.
Niðurstaða og rökstuðningur synjunar
Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan viðeigandi ákvæða þessara reglna. 
Þar sem starfsmenn hafa umboð til að taka ákvörðun á grundvelli þessara reglna skulu þeir kynna umsækjanda niðurstöðu tryggilega og kynna honum um leið rétt hans til að fara fram á að félagsmálaráð (fjölskylduráð) fjalli um umsóknina. Umsækjandi hefur fjögurra vikna frest til að vísa máli sínu til félagsmálaráðs frá því honum barst vitneskja um ákvörðun. Félagsmálaráð skal fjalla um umsókn og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.
Ákvörðun félagsmálaráðs skal kynnt umsækjanda tryggilega og um leið skal honum kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.

27. gr.
Málskot til úrskurðarnefndar félagsþjónustu
Umsækjandi getur skotið ákvörðun félagsmálaráðs (fjölskylduráðs) til úrskurðarnefndar félagsþjónustu. Skal það gert innan fjögurra vikna frá því umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun félagsmálaráðs.

28. gr.
Gildistaka

Reglur þessar taka gildi 1. júlí  2012 og falla þar með úr gildi reglur frá 1. júlí 2008
Fylgiskjöl:
1. Matsviðmið
2. Matsviðmið- milliflutningar

Þannig samþykkt á fundi fjölskylduráðs  7. mars 2012
og staðfest á fundi bæjarstjórnar Akraness 13. mars 2012.

Akranesi, 15. mars 2012.

Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri (sign)

 


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008