ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Fjölskyldusvið

13. mars 2008

Barna- og unglingastarf í tómstundum á Akranesi - Viðmiðunarreglur

1. Markmið

Markmið þessara reglna er að styrkja virk tómstunda- og íþróttafélög í  bæjarfélaginu til að halda uppi öflugu félags- tómstunda- og íþróttastarfi fyrir börn og unglinga á Akranesi.

 

2. Úthlutun

Tómstunda- og forvarnarnefnd Akraneskaupstaðar vinnur tillögur að úthlutun og leggur þær fyrir bæjarráð til afgreiðslu.

Styrkir þessir eru veittir til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi vegna þjálfunar og leiðsagnar barna og unglinga 3 - 18 ára.   Skilyrði er að félag hafi starfað í a.m.k. 2 ár og staðið skil á lögformlegum skyldum símum t.d. haldið aðalfund, lagt fram ársskýrslu ársreikninga  o.s.frv.  Til að teljast styrkhæfur, þarf virkur iðkandi/þátttakandi að stunda félagsstarf hjá viðurkenndu félagi með reglubundnum hætti í 6 mánuði eða lengur.

Styrktímabil er frá 1. janúar – 31. desember á umliðnu ári.

 

3. Skipting styrkja

• Bæjarstjórn ákveður heildarstyrkupphæð hverju sinni.

a) 15%  heildarupphæðar skiptist jafnt á milli þeirra sem úthlutað er til
b) 35% Skiptist  samkvæmt launagreiðslum til þjálfara og leiðbeinenda  barna og unglinga 18 ára og yngri samkvæmt ársuppgjöri
c) 30% Samkvæmt fjölda barna 14 ára og yngri sem greiða þátttökugjald í hverju félagi eða eru staðfestir þátttakendur í starfi þess
d) 20% Samkvæmt fjölda barna 15 – 18  ára i sem greiða þátttökugjald í hverju félagi eða eru staðfestir þátttakendur í starfi þess

• Frjáls framlög munu einnig skiptast samkvæmt þessum viðmiðunarreglum.

 

4. Umsóknir um styrki

• Styrkir eru veittir einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er 15. apríl ár hvert. Styrkirnir skulu auglýstir eigi síðar en 15. mars ár hvert.
• Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is og á skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð 
• Umsóknir og nauðsynleg fylgigögn skulu sendast á netfangið akranes@akranes.is eða berast á skrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.


Þannig samþykkt á fundi bæjarráðs Akraness 13. mars 2008

 

Akranesi, 13. mars 2008

    
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri (sign)


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008