1. gr.
Þessar reglur eru samdar til að framfylgja 5. gr. samþykktar um búfjárhald á Akranesi. Slægjustykkjum er úthlutað til tveggja ára, ef þörf er á að ráðstafa slægjustykkjum til annarra nota skal handhöfum greint frá því með þriggja mánaða fyrirvara.
2. gr.
Þeir einir sem tilgreindir eru á forðagæsluskýrslu geta fengið úthlutað slægjustykkjum. Ef umsækjendur eru fleiri en fjöldi slægjustykkja, skal dregið úr umsóknum. Við úthlutun skal garðyrkjustjóri sjá til þess að þeir aðilar sem haft hafa slægjustykki til afnota og af þeim greitt, njóti forgangs við úthlutun þeirra stykkja. Miða skal við að hver umsækjandi fái aðeins eitt stykki til afnota. Ef svo vill til að umsækjendur eru færri en stykkin sem til úthlutunar eru skal garðyrkjustjóri úthluta þeim stykkjum sem eftir eru til þeirra sem voru dregnir út, en þó aðeins í eitt ár í senn, fram að næstu úthlutun.
3. gr.
Ef handhafar slægjustykkja hætta að nýta þær á tímabilinu skal garðyrkjustjóra tilkynnt um það, svo hægt sé að ráðstafa landinu til annars aðila fram að næstu úthlutun.
4. gr.
Handhafar slægjustykkja skulu árlega greiða Akraneskaupstað gjald sem nemur 7.500 kr. fyrir hvern hektara sem þeir hafa til afnota.
Þannig samþykkt á fundi bæjarráðs Akraness 8. mars 2007.
Akranesi, 8. mars 2007
Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri (sign)
Gjaldskrá þessi hefur verið hækkuð um 4,5% í samræmi við almennar gjaldskrárhækkanir bæjarfélagsins fyrir árið 2013, samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Akraness frá 13. nóvember 2012.
Akranesi, 20. febrúar 2013.
Þorvaldur Vestmann, framkvæmdastjóri
umhverfis- og framkvæmdasviðs (sign) |