ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Umhverfis- og framkvæmdasvið

13. desember 2005

Samþykkt um sorphreinsun á Akranesi


I   KAFLI
Almenn ákvæði

 

1. gr.
Skilgreiningar og gildissvið

Akraneskaupstaður annast meðhöndlun úrgangs á Akranesi, á þann hátt og með þeim takmörkunum sem leiða af samþykkt þessari, lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og lögum um meðferð úrgangs, nr. 55/2003 og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum. 
Tækni- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar fer með stjórn meðferðar úrgangs.  Um eftirlit fer skv. lögum um förgun úrgangs samkvæmt.lögum nr. 55/2003 og reglugerðum settum skv. þeim.  Til sorphirðu telst hirðing almenns húsasorps frá íbúðarhúsnæði.

Til meðhöndlunar úrgangs telst söfnun, geymsla, pressun, flokkun, flutningur, endurnotkun, endurnýting eða urðun.

Móttökustöð er í landi Akraneskaupstaðar við Höfðasel.  Þar er tekið á móti úrgangi sem fellur til á Akranesi.  Söfnunarstöðvar eru gámaplön sem starfrækt eru af Akraneskaupstað utan aðalstarfsstöðvar (Gámu) og ætlað er að taka á móti flokkuðum úrgangi.  Bæjaryfirvöld ákveða í hverju tilfelli hvaða sorpflokkun er tekið á móti í söfnunarstöðvum, innan þeirra marka sem starfsleyfi kveður á um.

 

2. gr.
Skyldur verktaka

Verktakar sem annast sorphirðu samkvæmt samningi við Akaneskaupstað skulu uppfylla ákvæði samninga um meðhöndlun úrgangs og hafa starfsleyfi heilbrigðisnefndar Vesturlands til starfsemi sinnar, samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi.  Sama gildir um verktaka sem sinna hirðingu rekstrarúrgangs hjá fyrirtækjum á Akranesi.


II KAFLI

3. gr.
Fyrirkomulag sorphirðu frá íbúðarhúsnæði

Sorp skal hirt með relgulegum hætti frá íbúðareigendum.  Bæjarstjórn Akraness ákveður í samráði við heilbrigðisnefnd hvaða ílát og hvaða aðferðir skuli nota til sorpsöfnunar og sorphirðu.  Eigendum og umráðamönnum íbúðarhúsnæðis á Akranesi er skylt að nota þau ílát og þær aðferðir við sorpsöfnun sem bæjarstjórn ákveður.


Akraneskaupstaður leggur íbúðum til viðeigandi sorpílát, samkvæmt nánari ákvörðun bæjarstjórnar.  Fyrir viðbótarílát greiðist gjald samkvæmt gjaldskrá.  Þar sem stærri ílát henta betur, svo sem við fjölbýlishús, getur bæjarstjórn ákveðið notkun þeirra.


4. gr.
Skyldur húsráðenda

Sorpgeymslur skulu uppfylla ákvæði byggingar- og hollustuháttarreglugerða.  Sorpgeymslur skulu vera aðgengilegar fyrir starfsmenn sorphirðu og standa sem næst aðkomu að lóð.  Þær skulu standa saman ef um fjölbýlishús er að ræða.  Húsráðendur skulu halda sorpílátum hreinum, hreinsa snjó frá sorpgeymslum á vetrum og halda greiðfærri leið að þeim svo unnt sé að annast hreinsun.

 

5. gr.
Notkun sorpíláta

Óheimilt er að láta garðúrgang, jarðefni eða grjót í almenn sorpílát.  Jarðefnum, þar með töldu grjóti eða múrbroti, skal komið fyrir á sértilgrindum móttökustað.  Óheimilt er að losa í almenn sorpílát spilliefni, hættuleg efni eða efni sem sprengihætta getur stafað af, þunga málmhluti eða tærandi efni.
Spilliefnum, hættulegum úrgangi og öllum endurvinnanlegum úrgangi skal skilað aðgreindum á sorpmóttökustað (Gámu).

 

6. gr.
Tíðni sorphirðu

Bæjarstjórn ákveður tíðni sorphirðu í bænum sem skal þó eigi fara fram sjaldnar en á 14 daga fresti.  Íbúum skal kynnt tíðni sorphirðu með hæfilegum fyrirvara.


III KAFLI
Meðferð úrgangs frá fyrirtækjum

7. gr.
Meðferð rekstrarúrgangs

Rekstraraðilar bera ábyrgð á hirðu og förgun rekstrarúrgangs sem til fellur í starfsemi þeirra og bera af honum allan kostnað.  Rekstraraðilum ber að skila rekstrarúrgangi til móttökustðvar með starfsleyfi.  Söfnun, frágangur og flutningur á úrgangi frá fyrirtækjum og stofnunum skal vera í samræmi við fyrirmæli heilbrigðisnefndar Vesturlands.  Ákæði II. kafla samþykktar þessarar um frágang og umgengni um sorpílát gilda einnig um þau ílát sem fyrirtæki nota undir rekstrarúrgang.  Gæta skal fylsta hreinlætis við söfnun og flutning og tryggja að ekkert fjúki eða falli af flutningatækjum sem óþrifanði getur valdið.
Akraneskaupstaður tekur að sér förgun rekstrarúrgangs hjá þeim fyrirtækjum á Akranesi sem þess óska, samkæmt gjaldskrá sem bæjarstjórn setur og auglýsir.

 


IV KAFLI
Móttökustöðvar og móttaka í sorpmóttökustöð

8. gr.
Móttaka úrgangs í söfnunarstöðvum og móttökustöð

Akraneskaupstaður tekur við öllum úrgangi sem til fellur á Akranesi ýmist í móttökustöð (Gámu) eða í söfnunarstöðvum, eftir nánari ákvörðun bæjarstjórnar.  Opnunartími söfnunar- og móttökustöðvar skal auglýstur opinberlega.
Úrgangur skal flokkaður við móttöku samkvæmt flokkunarreglum Gámu.  Spilliefni, svo sem úrgangsolía og úrgangsvökvar, skulu aðskilin frá öðrum úrgangi og uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 806/1999 um spilliefni. Heimilt er að undanþiggja gjaldskylu minni háttar magn, sem komið er með til móttökustöðvar.  Ávallt skal leggja gjald á allan rekstrarúrgang.


V KAFLI
Gjaldtaka

9. gr.
Almennt sorpuhirðu og sorpeyðingargjald

Akraneskaupstaður, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar, leggur á almennt sorphirðu og sorpeyðingargjald sem standa skal undir þeim kostnaði sem á sveitarfélagið fellur vegna móttöku úrgangs, sorphirðu, meðhöndlunar og förgunar sorps í samræmi við ákvæði 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðferð úrgangs.  Gjaldið skal aldrei vera hærra en nemur þeim kostnaði sem fellur til í sveitarfélaginu við meðhöndlun úrgangs og tengda starfsemi.
Almennt sorphirðu og sorpeyðingargjald skal taka mið af fjölda og stærð íláta,  hreinsunartíðni og sorpeyðingu.  Sorpgjald innheimtist með sama hætti og fasteignagjöld og á sömu gjalddögum.
Kvörtunum vegna álagningar eða innheimtu gjalda skal beint til forstöðumanns sorpmóttökustöðvar (Gámu) eða tækni- og umhverfissviðs.  Til tryggingar greiðslu sorpgjalda samkvæmt gjaldskrá er lögveðréttur í viðkomandi fasteign í tvö ár frá gjalddaga.  Gjaldskráin skal birt í B-deild Stjórnartíðinda.


VI KAFLI
Viðurlög, brottfall og gildistaka

10. gr.
Viðurlagaákvæði

Með brot gegn samþykkt þessari fer samkvæmt ákvæðum 33. og 34. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 24. gr. laga nr. 55/2003 um meðferð úrgangs.

 

11. gr.
Brottfall og gildistaka

Samþykkt þessi öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut kunna að eiga að máli.  Með þessari samþykkt fellur úr gildi eldri samþykkt um sorphreinsun á Akranesi nr. 728/1997.

 


Þannig staðfest í bæjarstjórn Akraness
við síðari umræðu þann 13. desember 2005.
Fyrri umræða fór fram þann 15. nóvember 2005.

 

Akranesi, 15. desember 2005

      
Guðmundur Páll Jónsson, bæjarstjóri (sign)


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008