ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Fjölskyldusvið

3. maí 2005

Samningur um rekstur og samskipti Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness

 

1. gr.


Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness (ÍA) eru sammála um á markmið samnings þessa sé að efla tengsl bæjarins og ÍA í því skyni að íþróttastarf á Akranesi verði áfram þróttmikið, æsku bæjarins til heilla.  Sérstök áhersla skal lögð á forvarnar- og uppeldisgildi íþrótta og aukna samvinnu skólanna og íþróttahreyfingarinnar með fyrrnefndar áherslur í huga


2. gr.


Akraneskaupstaður leggur áherslu á mikilvægi forvarnargildis og þjónustuhlutverks íþróttafélaganna gagnvart bæjarbúum á öllum aldri, en með sérstakri áherslu á unglinga og börn.  Af hálfu Íþróttahreyfingarinnar er áhersla lögð á skyldur hennar gagnvart bæjarbúum og þá sérstaklega unglingum og börnum m.a. með því að halda uppi fjölbreyttri íþrótta- og félagsstarfsemi vel rekinna félaga.  Með samningi þessum heitir ÍA því að gera sem flestum bæjarbúum kleift að stunda íþróttir m.a. með því að veita þeim greiðan aðgang að íþróttafélögum og því starfi sem fram fer á þeirra vegum hverju sinni í einstökum greinum.  M.a. er það markmið ÍA eftirfarandi:

 

  • Að stuðla að hollri og heilbrigðri hreyfingu bæjarbúa á öllum aldri.
  • Að stuðla að því að bæjarbúar eigi án tillits til efnahags, kynferðis, kynþáttar, aldurs eða annarra félagslegra aðstæðna möguleika á þátttöku í æskulýðs- og íþróttastarfi.
  • Að áhersla verði lögð á forvarnarstarf innan félaga ÍA og að viðurkennd uppeldisleg gildi verði þar höfð að leiðarljósi.
  • Að stuðla að heilbrigðri sál í hraustum likama.


3. gr.


Akraneskaupstaður vill með samningi þessum tryggja að fjármunir sem lagðir eru til rekstrar íþróttahreyfingarinnar, íþróttamannvirkja Akraness og framkvæmda á sviði íþróttamála nýtist sem best þeim bæjarbúum sem annars vegar stunda íþróttir sér til ánægju og heilsubótar og hins vegar keppni.


4. gr.


Íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar eru opin aðilarfélögum ÍA til afnota án endurgjalds fyrir alla almenna og viðurkennda íþróttastarfsemi í samræmi við íþróttalög nr. 64 frá 1998 og þær reglur sem gilda um notkun mannvirkjanna.  Framlag Akraneskaupstaðar skal metið í ársreikningum bæjarins og viðurkennt sem framlag til íþróttamála.  Að undanskilinni notkunar grunnskólanna er viðurkenndur forgangur íþróttafélaga innan ÍSÍ og ÍA.  Að teknu tilliti til forgangs skólanna og íþróttahreyfingarinnar er heimilt að leigja út tíma til almennings, fyrirtækja og annarra sem stunda vilja íþróttir.  Aðilar eru sammála um að stuðla að sem mestri nýtingu íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar.


5. gr.


Aðilar eru sammála um að starfsmenn Akraneskaupstaðar og stjórn ÍA og aðildarfélög skuli hafa með sér náið og gott samstarf.  Sérstök áhersla af beggja hálfu er á samvinnu milli þeirra aðila sem vinna að almennri velferð unglinga og barna. M.a. á þetta við um framkvæmd ýmissa viðburða svo sem fræðslu- og forvarnardags, gamlársdagshlaups, Akraneshlaups, mótahalds félaga, innritunardags ÍA o.fl.  Aðilar eru sammála um að skilgreina þetta samstarf frekar og stofna  sérstakan samræmingar- og/eða framkvæmdahóp sem sér um sameiginleg átaksverkefni í íþrótta-, æskulýðs- og skólamálum. Hópurinn setji sér mælanleg árangurstengd markmið.


6. gr.


Bæjarstjórn, nefndir bæjarins, stjórn ÍA og stjórnir aðildarfélaga ÍA eru sammála um að eiga gott samstarf í þvi skyni að ná sem bestum árangri í þeim málum sem unnið er að.  ÍA skal tryggður áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögrétti innan þeirrar nefndar bæjarins sem fer með íþróttamál.


7. gr.


Fjárhagslegur stuðningur Akraneskaupstaðar við ÍA og íþróttafélög innan ÍA er með eftirfarandi hætti:

 

  • Rekstrarkostnaður íþróttahúsa og sundlauga kaupstaðarins.
  • Rekstrarkostnaður æfinga- og keppnisvalla á Jaðarsbökkum.
  • Árlegur rekstrarstyrkur til ÍA samkvæmt samningi þessum.
  • Framlög til ÍA vegna sérstakra verkefna, sem um er samið í samningi þessum eða ákveðið að semja um síðar.
  • Rekstrarsamningur við Golfklúbbinn Leyni um rekstur Garðavallar.
  • Framlög Akraneskaupstaðar til íþrótta- og æskulýðsfélaga vegna þjálfunar-, ferða- og leiðbeinendakostnaðar félaganna.
  • Styrkir til afreksfólks og félaga sem ná afburða árangri í samræmi við reglur þar um.
  • Sérstakir rekstrarsamningar við  íþróttabandalagið og einstök íþróttafélög innan ÍA.
  • Sérstakir samningar um framkvæmdir á vegum ÍA eða félaga innan ÍA.
  • Ráðstöfun fjármuna til uppbyggingar íþróttamannvirkja og tækjakaupa.


8. gr.


Akraneskaupstaður samþykkir að styrkja rekstur Íþróttabandalags Akraness árlega á gildistíma samnings þessa um kr. 800.000 og breytist fjárhæð þessi í samræmi við vísitölu neysluverðs.

ÍA er reiðubúið gegn endurgjaldi að annast eftirfarandi verkefni á gildistíma samnings þessa:

 

  • Framkvæmd viðburða á Jónsmessu s.s. samkomu við Jónsmessubrennu, Jónsmessugöngu á Akrafjall o.fl. (Akraneskaupstaður annst framkvæmd brennu).  Árlegt endurgjald fyrir þennan þátt er kr. 150.000 og verðbætist árlega samkvæmt vístölu neysluverðs.
  • Þátttaka í undirbúningi og framkvæmd Þrettándabrennu, kjöri íþróttamanns Akraness og veiting viðurkenninga til unglinga sem orðið hafa Íslandsmeistarar, framkvæmd heilsuviku o.fl.  Innifalið í þessum lið er gerð viðurkenningargripa til einstaklinga merkt Akraneskaupstað og ÍA.  Endurgjald fyrir þennan þátt er kr. 400.000  og verðbætist samkvæmt vísitölu neysluverðs.
  • Skipulagningu á a.m.k. fimm gönguferðum yfir árið um Akranes fyrir almenning og annarra viðburða undir kjörorðinu “Göngum til heilbrigðis”.  Endurgjald fyrir þennan þátt er kr. 150.000 og verðbætist samkvæmt vísitölu neysluverðs.
  • Önnur verkefni sem samið er um hverju sinni.

 

Akraneskaupstaður og ÍA munu á grundvelli ofangreinds gera með sér nánara samkomulag um framkvæmd einstakra verkliða hér að ofan, hlutverk hvors aðila og skyldur.


9. gr.


Á grundvelli samþykktar bæjarstjórnar Akraness  frá 14. desember 2004 er gert ráð fyrir kr. 3.387.000 í styrki til félaga innan ÍA og annarra frjálsra æskulýðsfélaga vegna kostnaðar af leiðbeinendum, þjálfurum og vegna ferða.  Akraneskaupstaður skuldbindur sig með samningi þessum að auka framlög sín til félaganna þannig að styrkur hvers árs verði eftirfarandi:

 

Árið 2006

kr.   6.000.000

Árið 2007

kr.   7.500.000

Árið 2008

kr.   8.500.000

Árið 2009

kr. 10.000.000

 

Bæjarstjórn, í samvinnu við ÍA og önnur æskulýðsfélög, setur reglur, sem gilda skulu um úthlutun ofangreindra fjármuna, en tómstunda- og forvarnarnefnd skal annast formlega úthlutun fjármunanna til viðkomandi félaga.
Aðilar eru sammála um að endurskoða reglur um styrki til félaga samkvæmt þessari grein þannig að tekið verði tillit til systkinaafsláttar.  Miðað verði við að börn upp að 18 ára aldri greiði fullt æfinga- eða félagsgjald en yngri systkini þeirra greiði hálft gjald hvort heldur um er að ræða íþróttafélag eða önnur félög.  Þau félög sem taki þessa reglu upp geti sótt um framlag á grundvelli ofangreinds til að mæta þeim afslætti sem veittur er, allt að 50% af æfingagjaldi. 


10. gr.


Aðilar eru sammála um að leita sameiginlega leiða til að styrkja í auknum mæli afreksfólk í íþróttum t.d. með stofnun sjóðs með þátttöku fleiri aðila en ÍA og Akraneskaupstaðar.


11. gr.


Á Jaðarsbökkum og Langasandi er ákjósanleg aðstaða til iðkunar íþrótta og útivistar.  Svæðið hefur upp á mikla möguleika að bjóða og stefna bæjarstjórnar er að skapa þar á næstu árum útivistar- og íþróttasvæði sem bæjarbúar geta verið stoltir af til langrar framtíðar.  Akraneskaupstaður mun í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar Akraness frá 15. júní 2004 og á grundvelli skýrslu vinnuhóps frá apríl 2004 um uppbyggingu íþróttamála og  vinnu starfshóps um sundlaugarsvæðið á Jaðarbökkum, vinna að eftirfarandi verkefnum á sviði íþróttamála:

 

  • Byggingu fjölnota íþróttahúss á Jaðarsbökkum.
  • Byggingu innisundlaugar og endurbyggingar potta- og rennibrautarsvæðis á Jaðarsbökkum þannig að svæðið verði allt árið um kring ákjósanlegt til sundkennslu, sundæfinga, afþreyingar og heilsubótar.
  • Stækkun áhorfendastúku á Jaðarsbakkavelli í samræmi við reglur UEFA og KSÍ.
  • Byggingu nauðsynlegrar búningsaðstöðu, þjónusturýmis og aðstöðu fyrir líkamsrækt.
  •  Gerð framkvæmdasamnings við Golfklúbbinn Leyni.

 

Á grundvelli deiliskipulags, sem verið er að vinna að um Jaðarsbakkasvæðið og tillagna starfshóps um sundlaugarsvæðið á Jaðarsbökkum, er það stefna bæjarstjórnar að ljúka uppbyggingu á Jaðarsbökkum á næstu árum þannig að svæðið verði að því loknu fullbyggt með þá þjónustu og aðstöðu, sem taki mið af þörfum almennings og keppnisfólks.


12. gr.


Samningur þessi gildir frá undirskrift hans til 31. desember 2009.  Á árinu 2008 skulu aðilar taka upp viðræður um endurnýjun samningsins og nauðsynlegar breytingar.


13. gr.


Við undirritun samnings þessa fellur úr gildi samningur aðila frá 12. apríl 1994.

Samningur þessi er gerður í tveimur eintökum, eitt fyrir hvorn aðila.


Akranesi, 3. maí 2005.

 

F.h. Akraneskaupstaðar:  

Gísli Gíslason, bæjarstjóri (sign)

Guðmundur Páll Jónsson, forseti bæjarstjórnar (sign)

Sveinn Kristinsson, formaður bæjarráðs (sign)

Gunnar Sigurðsson, í bæjarstjórn Akraness (sign)

 

F.h.Íþróttabandalags Akraness:

Sturlaugur Sturlaugsson,formaður ÍA (sign)
Ingunn Ríkharðsdóttir (sign)
Ellert Ingvason (sign)
Þorvarður B. Magnússon (sign)
Halldór Jónsson (sign)


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008