ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Fjölskyldusvið

13. maí 2008

Reglur um félagslega heimaþjónustu á vegum Akraneskaupstaðar

 


Reglur um félagslega heimaþjónustu
á vegum Akraneskaupstaðar


I. kafli
Markmið og skipulag

1. gr.
Markmið
Markmið félagslegrar heimaþjónustu eru að efla einstaklinga til sjálfshjálpar og gera þeim kleift að búa sem lengst í heimahúsi við sem eðlilegastar aðstæður. Til að tryggja þessi markmið og þar með að þjónustuþegar varðveiti færni sína og sjálfstæði miðast aðstoð við þau verkefni sem viðkomandi eða aðrir fullorðnir  á heimilinu geta ekki sinnt.

2. gr.
Réttur
Rétt til félagslegrar heimaþjónustu eiga þeir sem búa í heimahúsum og geta ekki séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna,  veikinda, barnsburðar, fötlunar eða af öðrum ástæðum sem fjölskylduráð metur gildar.

3. gr.
Stjórn og yfirumsjón
Fjölskylduráð fer með yfirstjórn félagslegrar heimaþjónustu á vegum Akraneskaupstaðar.  Öldrunarfulltrúi annast daglega framkvæmd þjónustunnar samkvæmt reglum þessum.

II. kafli
Starfssvið félagslegrar heimaþjónustu

4. gr.
Helstu verkefni
• þrif og almenn heimilisstörf
• innlit og samvera
• persónulegur stuðningur og aðstoð í samvinnu við heimahjúkrun
• aðstoð og fylgd við rekstur erinda
• Heimsending á mat
• aðstoð við gæslu og umönnun barna og ungmenna  t.d. vegna erfiðra fjölskylduaðstæðna, fötlunar eða veikinda

III. kafli
Skilgreining á þjónustu

5. gr.
Innihald Þjónustu
Þrif
Þrif eru almennt innt af hendi aðra hverja viku.  Aðstoð við almenn heimilisþrif takmarkast við þau herbergi sem eru í daglegri notkun þjónustuþega s.s. eldhús, salerni, ganga, svefnherbergi, stofu og borðstofu. 

Aðstoð getur verið veitt við:
• ryksugun, þurr- og blautmoppun gólfa
• þrif á baðherbergi, þ.e.a.s. vaski, salerni, baðkari og/eða sturtu
• afþurrkun
• aðstoð við almenna tiltekt
• rúmfataskipti
• aðstoð við þvott
    
 Almennt er ekki veitt aðstoð s.s. við:
• þrif á sameign
• gluggaþvott, gluggatjaldaþvott og uppsetningu á gluggatjöldum
• stórhreingerningar

Þrif eru almennt innt af hendi aðra hverja viku nema sérstakar aðstæður kalli á annað. 

Komi beiðni um  þjónustu sem veita þarf oftar en vikulega er hún metin í samvinnu við deildarstjóra heimahjúkrunar.

2. Innlit og samvera
Með innliti stuttan tíma í einu, oft daglega, er verið að  leitast  við að mæta þörfum einstaklinga á ýmsa vegu. Tilgangurinn getur verið m.a. að rjúfa félagslega einangrun eða veita stuðning og eftirlit vegna veikinda.

3. Persónulegur stuðningur og aðstoð
Ýmis verkefni í samvinnu við heimahjúkrun sem m.a.  geta falist í aðstoð við að klæðast og matast,  eftirliti með lyfjatöku ef viðkomandi einstaklingur er í lyfjaskömmtun og hvatningu og eftirliti með böðun.

4. Aðstoð og fylgd við rekstur erinda.
Starfsmaður getur aðstoðað  við matarinnkaup ef þjónustusamningur kveður á um það.   Þjónustuþega er þá gefinn kostur á að fara með, sé það mögulegt.
Annar erindrekstur s.s. akstur í banka eða aðrar þjónustustofnanir skal vera í  fylgd þjónustuþega. Þá er heimilt að starfsmaður aðstoði vegna heimsóknar til læknis sé það á vinnutíma.  Ekki er heimilt að starfsmaður fari með fjármuni þjónustuþega.

5.  Heimsending á mat - skilgreining
Heimsendur matur er fyrir þá sem ekki geta séð sjálfir um matseld  um lengri eða skemmri tíma.  Sótt er um heimsendngu matar til öldrunarfulltrúa.

6.  Aðstoð við gæslu og umönnun barna og ungmenna 
Hvert tilvik er metið sérstaklega og ákvarðað af félagsmálaráði.

IV. kafli
Framkvæmd

6. gr.
Sækja þarf  skriflega um félagslega heimaþjónustu, á þar til gerðu eyðublaði, hjá öldrunarfulltrúa fjölskyldusviðs. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu Akraneskaupstaðar

7. gr.
Þegar umsókn hefur verið móttekin skal gera þjónustusamning við þjónustuþega þar sem kveður á um þau verkefni sem framkvæma á svo og gildistíma samnings.  Félagsleg heimaþjónusta skal að öllu jöfnu veitt á dagvinnutíma en í samvinnu við heimahjúkrun er heimilt að veita þjónustu um kvöld og helgar. 

V. kafli
Gjaldtaka

8. gr.
Greitt er fyrir félagslega heimaþjónustu samkvæmt reglum og gjaldskrá sem bæjarstjórn setur að fengnum tillögum frá fjölskylduráði.  Gjaldskráin skal endurskoðuð í janúar ár hvert.

Greitt er fyrir heimsendingu matar samkvæmt gjaldskrá þar um, en stjórn Höfða ákveður verð á mat og bæjarstjórn ákveður gjald fyrir heimsendingu.

9. gr.
Unnt er að sækja um til fjölskylduráðs undanþágu frá gjaldskyldu eða lækkun á gjaldi ef brýna nauðsyn ber til.

VI. kafli
Starfsmenn heimaþjónustu

10. gr.
Leitast skal við að ráða fólk til starfa í félagslegri heimaþjónustu sem hefur reynslu af heimilis- og umönnunarstörfum.  Allir starfsmenn heimaþjónustu skulu framvísa sakavottorði.

11. gr.
Launakjör starfsmanna fara eftir kjarasamningi Akraneskaupstaðar og viðkomandi stéttarfélags.

12. gr.
Starfsmenn eru bundnir þagnarskyldu um það sem þeir  fá vitneskju um í störfum sínum um einkamál þjónustuþega og heimilishald.  Þagnarskyldan helst þó látið sé af störfum.
Starfsmenn skulu undirrita drengskaparheit um þagnarskyldu við ráðningu.

13. gr.
Starfsmönnum er óheimilt að geyma lykla að íbúðum þjónustuþega.  Ef aðstæður knýja á um slíkt skal það vera með samþykki aðstandenda og vitund öldrunarfulltrúa.  Ef þjónustu lýkur skal lykli skilað til öldrunarfulltrúa.

14. gr.
Starfsmönnum er óheimilt að þiggja gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá þjónustuþegum eða aðstandendum þeirra nema innan eðlilegra marka og um sé að ræða óverulegar gjafir.  Hafa skal samráð við yfirmann ef vafi leikur á hvort starfsmanni sé heimilt að taka við gjöf.

15. gr.
Akraneskaupstaður hefur í gildi ábyrgðatryggingu atvinnurekstrar sem tekur til
skaðabótaábyrgðar launþega.

VII. kafli
Málskot og gildistími

16. gr.
Umsækjandi um félagslega heimaþjónustu getur áfrýjað ákvörðun  öldrunarfulltrúa til fjölskylduráðs og skal það gert innan fjögurra vikna.  Ákvörðun fjölskylduráðs má áfrýja til úrskurðarnefndar félagsþjónustu í félagsmálaráðuneytinu sbr. lög nr. 40/1991 gr. 64  og skal það gert innan fjögurra vikna frá því viðkomandi berst vitneskja um ákvörðun.

17. gr.
Reglur þessar voru samþykktar 21. apríl 2008 og staðfestar af bæjarstjórn Akraness .13. maí 2008 og öðlast þegar gildi.

Akranesi, 13. maí 2008

Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri (sign)


 


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008