ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Stjórnsýslu- og fjármálasvið

12. nóvember 2009

Starfsstyrkur bæjarlistamanns Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður veitir starfsstyrk til listamanna á Akranesi samkvæmt eftirfarandi reglum:

 

1. Starfsstyrkur bæjarlistamanns Akraneskaupstaðar er veittur einu sinni á hverju ári.


2. Starfsstyrknum skal úthlutað í tengslum við Vökudaga, sem haldnir eru á Akranesi árlega.

3. Stjórn Akranesstofu gerir tillögu um bæjarlistamann ár hvert til bæjarstjórnar og skal tillagan vera afgreidd í byrjun október í stjórninni.


4. Hægt er að veita einstaklingi eða hópi starfsstyrkinn.


5. Einstaklingur eða hópur getur fengið starfsstyrkinn oftar en einu sinni, en þó skulu aldrei líða færri en fimm ár á milli þess sem sami aðili fær starfsstyrkinn.


6. Starfsstyrkurinn skal vera krónur 400.000 – og skal upphæðin taka breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðlags með grunnvísitölu í október 2009, sem er 353,6 stig.  Styrkurinn sé innan heimilda fjárhagsáætlunar Akranesstofu hvers árs.


7. Bæjarlistamaður skal að loknu tímabili hans sem bæjarlistamaður kynna fyrir bæjarbúum það verkefni sem hann hefur unnið að, ýmist með tónleikum, sýningum eða öðrum þeim hætti sem hæfir listgrein bæjarlistamanns á hverjum tíma.


8. Heimilt er við sérstakar aðstæður að veita starfsstyrkinn til aðila sem ekki á lögheimili á Akranesi, enda tengist hann bæjarfélaginu með einhverjum hætti.

 

Þannig samþykkt á fundi bæjarráðs Akraness

12. nóvember 2009 og staðfest á fundi bæjarstjórnar Akraness 14. september 2010.

 

Jón Pálmi Pálsson (sign)

framkvæmdastjóri

 


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008