1. Markmið Að veita íþróttafélögum á Akranesi árlegar viðurkenningar fyrir unnin afrek í íþróttum.
2. Viðmið styrkveitinga Akraneskaupstaður veitir viðurkenningar til félaga/deilda innan ÍSÍ vegna Íslands- og/eða bikarmeistaratitla í efstu deild karla og kvenna í viðkomandi hópíþrótt eða einstaklingsgrein. Upphæðir viðurkenninga eru sem hér segir:
Íslandsmeistaratitill í hópíþrótt eða einstaklingsgrein kr. 100.000 Bikarmeistaratitill í hópíþrótt eða einstaklingsgrein kr. 50.000
3. Skyldur styrkþega Öll þau íþróttafélög sem þiggja viðurkenningu frá Akraneskaupstað skulu hlíta þeim reglum sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur um lyfjanotkun og lyfjaeftirlit, svo og þeim almennu siða- og agareglum sem gilda um framkomu íþróttamanna innan vallar sem utan. Akraneskaupstaður áskilur sér rétt til að hætta við að veita viðurkenningu ef regla þessi er brotin.
4. Framkvæmd Íþróttafulltúi ÍA veitir tómstunda- og forvarnarnefnd upplýsingar um hverjir hafa hlotið Íslands- og bikarmeistaratitla eigi síðar en 1. desember ár hvert. Afhending viðurkenninga fer fram við kjör íþróttamanns Akraness.
5. Gildistími Viðmiðunarreglur þessar voru samþykktar af tómstunda- og forvarnarnefnd Akraneskaupstaðar þann 23. október 2007 og af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar þann 13. nóvember 2007 og skal endurskoðuð eigi síðar en árið 2010.
Viðmiðunarreglur þessar taka gildi þann 15. nóvember 2007.
Akranesi, 15. nóvember 2007
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri (sign)
|