Með styrkveitingu er átt við gjaldfærðar millifærslur vegna notkunar íþróttafélaga á íþróttamannvirkjum bæjarins samkvæmt samþykkt bæjarráðs hverju sinni. Ekki er átt við greiðslu á fjármunum til íþróttafélaga heldur reiknaðan kostnað við notkun íþróttamannavirkja pr. klukkustund. Miðað er við að greiða að fullu kostnað vegna æfinga- og keppnisaðstöðu á héraðs- og Íslandsmótum á Akranesi.
Styrkveiting nær til þeirra félaga, sem eru aðilar að Íþróttabandalagi Akraness (ÍA) og starfa samkvæmt lögum bandalagsins.
Styrkur er veittur vegna afnota ÍA af eftirtöldum íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar:
| Íþróttahúsið Vesturgötu |
íþróttasalur; æfingasalur í kjallara |
| Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum |
íþróttasalur; minni æfingasalir |
|
Jaðarsbakkalaug |
|
|
Bjarnalaug |
|
|
Æfingasvæði að Jaðarsbökkum |
|
|
Fjölnota íþróttahús |
|
|
Þreksalir |
|
Forgangur á notkun íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar er eftirfarandi:
1. Grunnskólar og leikskólar Akraneskaupstaðar
2. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi (FVA) í samráði við Akraneskaupstað
3. Íþróttabandalag Akraness
Umsóknir um æfingatíma skulu sendar til rekstrarstjóra íþróttamannvirkja og skulu berast ár hvert fyrir 15. ágúst vegna vetrarstarfs og fyrir 15. apríl vegna sumarstarfs. Eigi síðar en viku eftir úthlutun æfingatíma, skal liggja fyrir yfirlit yfir æfingar hvers félags með sundurliðun fyrir deildir, aldursflokka og þjálfara viðkomandi hópa.
Æfingatímabil eru tvö og eru skilgreind á eftirfarandi hátt:
Vetrarstarf Frá 1. sept. til 31. maí og er sú úthlutun endurskoðuð um áramót.
Sumarstarf Frá 1. júní til 31. ágúst
Úthlutun æfingatíma er sameiginlega í höndum íþróttafulltrúa ÍA og rekstrarstjóra íþróttamannvirkja.
Við úthlutun æfingatíma er tekið mið af eftirfarandi þáttum: Fjölda iðkenda og hlutfalli barna og unglinga í hverju félagi Nýtingu síðasta tímabils og úthlutun æfingatíma Æfingar barna og unglinga hjá félögum innan ÍA hafi forgang á úthlutun æfingatíma
Stefnt skal að því að æfingum barna og unglinga ljúki fyrir kl. 19:00.
Í úthlutuðum æfingatíma er í megin atriðum miðað við að þar sé stunduð fyrirfram skilgreind íþróttastarfsemi viðkomandi aðila. Aðildarfélögum ÍA er ekki heimilt að framselja úthlutuðum æfingatímum til annarra. Rekstrarstjóra íþróttamannvirkja og íþróttafulltrúa ÍA er heimilt að endurúthluta þeim tímum sem eru vannýttir/ónotaðir.
Ný félög eða hópar innan ÍA sem sækja um æfingatíma eftir að umsóknarfrestur er liðinn geta fengið úthlutað tímum sem kunna að vera lausir eða bíða til næstu úthlutunar.
Hópar utan ÍA geta sótt um æfingatíma til rekstrarstjóra íþróttamannvirkja gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá.
Fyrir hvern íþróttasal eru skráðar upplýsingar um æfingar, iðkendafjölda, aldursflokka og kappleiki eða keppnir. Ennfremur skulu skráðar skýringar á ónýttum æfingatímum.
ÍA er heimilt í samráði við rekstrarstjóra íþróttamannvirkja að gera breytingar á tímatöflu ef ástæða þykir til. Fulltrúum ÍA og Akraneskaupstaðar er heimilt að fylgjast með æfingum.
Ekki er heimilt að æfingar í barna- og unglingaflokkum fari fram nema þjálfari eða annar ábyrgur aðili eldri en 18 ára sé til staðar.
Uppgjör aðstöðu- og keppnisaðstöðu styrkja miðast við gjaldskrá Akraneskaupstaðar hverju sinni.
Sækja þarf sérstaklega um undanþágu eða frávik frá þessum reglum til tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar.
Íþróttafulltrúi ÍA og rekstrarstjóri íþróttamannvirkja annast sameiginlega framkvæmd þessara reglna og verði ágreiningur um einstök atriði skal honum vísað til tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar.
Þannig samþykkt á fundi tómstunda- og forvarnarnefndar þann 9. ágúst 2006 og staðfest á fundi bæjarráðs þann 16. ágúst 2006
Akranesi, 16. ágúst 2006
Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri (sign)
|