ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Reglur og samþykktir
Prenta vefsíðu
Deildir: Umhverfis- og framkvæmdasvið

17. desember 2002

Starfsreglur um móttöku á sorpi á móttökustöð Gámu

1.  Akraneskaupstaður tekur á móti öllu því sorpi sem íbúar Akraness, fyrirtæki og aðilar sem Akraneskaupstaður hefur gert samninga við, skila á áthafnasvæði Gámu.  Við móttöku sorpsins er Akraneskaupstaður ábyrgðaraðili þess sem þangað berst og er engum heimilt að fénýta sér hluti eða efni sem þangað berst nema með formlegu samþykki bæjarins.  Bannað er að bera nokkuð það burt af svæði fyrirtækisins sem þangað berst sem úrgangur og á sú regla jafnt við um starfsmenn fyrirtækisins sem aðra. 
 
2.  Á athafnasvæði Gámu er safnað munum sem mögulegt er að endurnýta.  Aðeins er heimilt að taka muni til endurnýtingar ef fyrir liggur samþykki þess sem komið hefur með muninn eða munina.  Liggi ekki fyrir samþykki viðkomandi aðila til endurnýtingar skal muninum eða mununum fargað.  Umsjónarmaður Gámu skal sjá um að endurnýting muna sé aðeins til eigin nota þeirra sem fá muni afhenta og að munirnir verði ekki settir í sölu eða nýttir í atvinnuskyni.  Starfsmönnum Gámu er óheimilt að taka muni af svæðinu til endurnýtingar.
 
3.  Það er hlutverk forstöðumanns Gámu að halda rekstrarkostnaði við svæðið innan ramma fjárhagsáætlunar og afla þeirra tekna sem mögulegt er.  Það er einnig hlutverk hans og annarra starfsmanna sem þar vinna að leitast við að flokka þann úrgang sem berst á athafnasvæði fyrirtækisins og að sjá til þess að möguleikar á öflun tekna í þágu bæjarins verði nýttir eins og kostur er.  Á það við um hvers konar flokkun, svo sem flokkun timburs, málma o.fl.
 
4.  Í samræmi við starfsmannastefnu Akraneskaupstaðar er starfsmönnum Gámu óheimilt að fénýta verðmæti á athafnasvæði fyrirtækisins, nema með sérstöku leyfi bæjarstjóra eða bæjarráðs.  Þeim er einnig óheimilt að gera samninga við einstaka viðskiptaaðila Gámu um meðferð muna sem samrýmast ekki reglum þessum.
 
5.  Verðmæti, sem kunna að berast til Gámu og grunur er um að þangað hafi lent þar fyrir mistök, skulu starfsmenn Gámu reyna að hafa upp á þeim sem verðmætin á í þeim tilgangi að þau komist í hendur eiganda síns.
 
6.  Starfsmenn Gámu skulu hafa það að leiðarljósi að leiðbeina viðskiptavinum fyrirtækisins eins og kostur er og veita þeim bestu þjónustu og leiðbeiningar um flokkun og aðrar reglur móttökustöðvarinnar.
 
7.  Starfsmenn Gámu skulu gæta fyllsta öryggis við losun og lestun sorps sem á svæðinu er.
 
8.  Auk framangreinds gilda almennar reglur og samþykktir Akraneskaupstaðar og lög um starfsemi Gámu.

 

Þannig samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness

17. desember 2002.

Gísli Gíslason, bæjarstjóri (sign)


Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008