1. gr.
Dvalarheimilið Höfði, Akranesi, er stofnað af Akraneskaupstað, Hvalfjarðarstrandarhreppi, Innri-Akraneshreppi, Leirár- og Melahreppi og Skilmannahreppi. Dvalarheimilið Höfði er sjálfseignarstofnun. Heimili þess og varnarþing er á Akranesi.
2. gr.
Eignarhlutföll skiptast í samræmi við samkomulag um skiptingu stofnkostnaðar frá 22. júní 1974 og frá 29. nóvember 1987, sem er fylgiskjal skipulagsskrár þessarar.
3. gr.
Tilgangur heimilisins er að reisa og starfrækja dvalar- og þjónustuheimili fyrir aldraða í samræmi við lög nr. 82/1989 um öldrunarþjónustu.
4. gr.
Akraneskaupstaður leggur heimilinu til 3 ha. lands við Sólmundarhöfða án endurgjalds. Landið afhendist eftir þörfum heimilisins.
5. gr.
Rekstrarábyrgð eignaraðila skal vera í hlutfalli við íbúafjölda í hverju sveitarfélagi. Skal hlutfall þetta miðast við íbúatölu sveitarfélaganna 1. desember ár hvert en kostnaðarskipting vera samkvæmt því hlutfalli næsta almanaksár á eftir. Skal því íbúafjöldi í sveitarfélögunum þann 1. desember 1990 ráða hlutfalli rekstrarábyrgðar árið 1991.
6. gr.
Stjórn heimilisins skipa 5 menn, skulu þeir tilnefndir af eigendum til 4 ára í senn að loknum sveitarstjórnarkosningum. Bæjarstjórn Akraness tilnefnir 4 stjórnarmenn og hrepparnir sameiginlega 1 mann. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt.
7. gr.
Stjórnin annast allan rekstur heimilisins með þeirri verkaskiptingu sem segir í skipulagsskrá þessari. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra heimilisins og setur honum erindisbréf þar sem tilgreind er m.a. ábyrgð hans á fjárreiðum heimilisins og daglegum rekstri.
8. gr.
Stjórnin kýs sér formann, varaformann og ritara. Formaður boðar til stjórnarfunda og stjórnar þeim og fylgist með því að ályktanir stjórnarfunda séu framkvæmdar. Á fundum stjórnar ræður afl atkvæða úrslitum mála. Varaformaður gegnir störfum formanns í forföllum hans. Ritari heldur gerðabók yfir allt sem gerist á stjórnarfundum.
9. gr.
Að loknu hverju starfsári skal stjórnin leggja fyrir sveitarstjórnir eignaraðila starfsskýrslu og endurskoðaða reikninga heimilisins. Ennfremur starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Endurskoðun skal framkvæmd með sama hætti og viðhöfð er við endurskoðun ársreikninga Akraneskaupstaðar.
10. gr.
Reikningsár heimilisins er almanaksárið.
11. gr.
Stjórninni er heimilt að taka lán fyrir heimilið enda sé gert ráð fyrir slíku í samþykktri fjárhagsáætlun heimilisins eða ef eignaraðilar samþykkja slíkt sérstaklega og skal ákvæða 13. greinar skipulagsskrár þessarar gætt varðandi slíkar samþykktir.
12. gr.
Stjórnin ákvarðar vistun fólks á heimilinu að fengnum tillögum þjónustuhóps aldraðra
13. gr.
Breytingar á skipulagsskránni má því aðeins gera að fenginni samþykkt sveitarstjórna eignaraðila þannig: Samþykki bæjarstjórnar Akraness og a.m.k. tvegga viðkomandi hreppsnefnda.
14. gr.
Skipulagsskrá þessi gildir frá og með 1. janúar 1991.
Skipulagsskrá þessi þannig samþykkt:
Bæjarstjórn Akraness, þann 24. september 1991. Hreppsnefnd Hvalfjarðarstrandarhrepps, þann 6. september 1991. Hreppsnefnd Innri-Akraneshrepps, þann 10. september 1991. Heppsnefnd Leirár- og Melahrepps, þann 3. september 1991. Hreppsnefnd Skilmannahrepps, þann 9. september 1991.
Akranesi, 27. september 1991.
F.h. Akraneskaupstaðar F.h. Hvalfjarðarstrandarhrepps
Gísli Gíslason (sign) Jón Einarsson (sign)
F.h. Innri-Akraneshrepps F.h. Leirár- og Melahrepps
Anton Ottesen (sign) Sigurður Valgeirsson (sign)
F.h. Skilmannahrepps
Marinó Tryggvason (sign) |