ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Bæjarráð, fundur nr. 3158

Dags. 5.7.2012

3158. fundur bæjarráðs, haldinn  í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18,
 5. júlí 2012 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:
Guðmundur Páll Jónsson, formaður
Einar Brandsson, áheyrnarfulltrúi
Hjördís Garðarsdóttir, varamaður
Hrönn Ríkharðsdóttir, varaformaður
Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari

Fundargerð ritaði:  Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari.

Fyrir tekið:

1.  1203110 - Tölvuþjónusta - hýsing og rekstrarþjónusta fyrir Akraneskaupstað
 Föstudaginn 22. júní s.l. voru opnuð tilboð í útboðsverkið " Hýsing og rekstur miðlægs tölvubúnaðar, rekstur útstöðva, afritun og rekstur netkerfis Akraneskaupstaðar."
 Minnisblað frá Admon ráðgjöf dags. 2. júlí 2012 um tilboð í hýsingu og rekstur miðlægs búnaðar og útstöðva, afritun og rekstur netkerfis.
 Viðræður við Halldór Pétursson ráðgjafa og Ragnheiði Þórðardóttur, þjónustu- og upplýsingastjóra.
 Eftirfarandi tilboð bárust:

 Hluti 1 - Tölvubúnaður:

 Nafn bjóðanda Heildarverð í kr.

 Advania hf. 61.200.000 
 Nýherji 24.825.948
 Upplýsingatæknifélagið Omnis ehf. 16.500.000 
 Opin kerfi 35.997.984
 Síminn 24.694.658
 Þekking 28.534.923

 Hluti 2 - Afritunarþjónusta:

 Nafn bjóðanda Heildarverð í kr.

 Advania hf.  10.260.000
 Nýherji  6.216.538
 Upplýsingatæknifélagið Omnis ehf. 1.450.000 
 Opin kerfi  3.758.800
 Síminn  5.270.400
 Þekking  8.007.552

 Hluti 3 - Netkerfi:

 Nafn bjóðanda    Heildarverð í kr.

 Advania hf. 14.400.000
 Nýherji 7.248.020
 Upplýsingatæknifélagið Omnis ehf. 3.200.000
 Opin kerfi 5.832.000
 Síminn 3.360.920
 Þekking 4.768.740
 Halldór fór yfir forsendur útboðsins og yfirferð þess, en eftir yfirferð er Upplýsingatæknifélagið Omnis ehf með hagstæðasta tilboðið í hluta 1 og 2, en Síminn með hagstæðasta tilboðið í hluta 3.  Öll tilboð voru metin uppfylla skilyrði útboðsins.
 Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Omnis ehf og Símans á grundvelli tilboða.  Bæjarstjóra falið að ganga frá nauðsynlegum samningum við fyrirtækin svo og frágangi mála við núverandi þjónustuaðila.
   
2.  1205114 - Sérdeild - umsókn um aukið fjármagn vegna ársins 2012.
 Bréf framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu dags. 17. maí 2012, þar sem óskað er eftir viðbótarfjárveitingu vegna sérdeildar fyrir árið 2012.
 Bæjarráð samþykkir erindið.  Gert verði ráð fyrir fjárhæðinni í viðauka fjárhagsáætlunar.  Fjárveiting komi af fjárhagsliðnum "óviss útgjöld" 21-95-4995-1.
   
3.  1207003 - Harðarbakarí kaffihús - starfsleyfi
 Bréf sýslumanns dags. 28. júní 2012, þar sem óskað umsagnar vegna umsóknar Skagabrauðs ehf. á rekstrarleyfi fyrir kaffihúsið Harðarbakarí að Kirkjubraut 56, Akranesi.
 Bæjarráð samþykkir leyfisveitingu fyrir sitt leyti.
   
4.  1206211 - Risna gjafir og móttaka gesta - reglur
 Á bæjarráðsfundi 28. júní s.l. var samþykkt tillaga um að fela starfsmanna- og gæðastjóra Akraneskaupstaðar að semja reglur um risnu, gjafir og móttöku gesta.
 Minnisblað bæjarritara dags. 4.júlí 2012, þar sem nánar er gert grein fyrir bókhaldlegu fyrirkomulagi þessara mála svo og samanburði kostnaðar á síðasta kjörtímabili og þessa. Fram kemur í minnisblaðinu að kostnaður á hverju ári núverandi kjörtímabils er um 100% lægri en var að meðaltali á síðasta kjörtímabili.
 Lagt fram.
 
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:00.



Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008