Fjölskylduráð, fundur nr. 90
Dags. 29.5.2012
90. fundur fjölskylduráðs, haldinn í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18, 29. maí 2012 og hófst hann kl. 15:30
Fundinn sátu:
Ingibjörg Valdimarsdóttir, formaður
Þröstur Þór Ólafsson, aðalmaður
Einar Brandsson, áheyrnarfulltrúi
Svala Kristín Hreinsdóttir, verkefnisstjóri
Sveinborg Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri
Ingibjörg Gunnarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi
Elsa Lára Arnardóttir, varamaður
Fundargerð ritaði: Svala Hreinsdóttir, verkefnisstjóri.
Fyrir tekið:
1. 1203023 - Málefni aldraðra - skipan starfshóps
Samkvæmt erindisbréfi fyrir starfshóp vegna framtíðarskipulags í þjónustu við aldraða skipar Fjölskylduráð fjóra fulltrúa í starfshópinn. Fjölskylduráð skipar Steinunni Sigurðardóttur sem formann starfshópsins og Laufey Jónsdóttir verkefnisstjóri heimaþjónustu er skipuð af Fjölskyldustofu. Fjölskylduráð felur Laufeyju Jónsdóttur verkefnisstjóra heimaþjónustu að óska eftir því að Höfði skipi einn fulltrúa og HVE skipi einn fulltrúa í starfshópinn. Formaður boðar til fyrsta fundar þegar starfshópurinn verður fullskipaður. Starfshópurinn verður bæjaryfirvöldum til ráðgjafar í málum sem tengjast framtíðaruppbyggingu í þjónustu við eldri borgara á Akranesi. Starfshópurinn leggur skýrslu og tillögur fyrir fjölskylduráð.
2. 1204080 - Starf félagsráðgjafa - 60% í barnavernd
Búið er að ráða í 60% stöðu félagsráðgjafa hjá Fjölskyldustofu, félagsþjónustu Akraneskaupstaðar frá 1. júní nk. Eftirfarandi aðilar sóttu um starfið:
Ásta Jóna Ásmundsdóttir
Thelma Vestmann
Valur Bjarnason
Ákveðið var að ráða Ástu Jónu Ásmundsdóttur og mun hún taka til starfa 1. júní nk. Ragna Guðbrandsdóttir félagsráðgjafi mun láta af störfum 31. maí nk. Fjölskylduráð þakkar henni fyrir samstarfið og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
3. 1204076 - Starf forstöðumanns 100% - búseta fatlaðra
Búið er að ráða í starf forstöðumanns búsetuþjónustu sem auglýst var nýlega. Eftirfarandi aðilar sóttu um starfið:
Soffía Pétursdóttir
Margrét Magnúsdóttir
Ingibjörg Torfadóttir
Ástrós Una Jóhannesdóttir
Hrafnhildur Geirsdóttir
Ákveðið var að ráða Margréti Magnúsdóttur í starfið og tekur hún til starfa 15. júní næstkomandi. Helga Björk Bjarnadóttir forstöðuþroskaþjálfi lét af störfum 23. maí. Fjölskylduráð þakkar henni fyrir samstarfið og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
4. 1201476 - Málefni fatlaðra - kostnaður sveitarfélaga
Stjórn SSV hefur ákveðið að stofna starfshóp sem mun hafa það hlutverk að skoða ákveðna þætti í starfsemi málaflokks fatlaðra og vinna rekstrarúttekt samhliða þeirri vinnu. Stjórn SSV óskar eftir því að Akraneskaupstaður tilnefni fulltrúa frá sínu félagsþjónustusvæði í starfshópinn. Starfsmenn SSV vinna með starfshópnum eins og þarf hverju sinni. Fjölskylduráð tilnefnir Ingibjörgu Valdimarsdóttur sem fulltrúa Akraneskaupstaðar í starfshópinn.
5. 1205099 - Fjárhagsáætlun 2013
Bréf bæjarritara um fjárhagsáætlun 2013 vinnuáætlun og skil gagna lagt fram. Í bréfinu kemur fram að nú sé vinna hafin við fjárhagáætlun ársins 2013 svo og 2014 - 2015, en samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum skal áætlun ársins 2013 vera lögð fram í bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember og afgreidd í bæjarstjórn eigi síðar en 15. desember. Samhliða því skal afgreiða þriggja ára fjárhagsáætlun. Fjölskylduráð felur framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu að hefja nauðsynlegan undirbúning að vinnu við fjárhagsáætlun.
6. 1204044 - Húsnæðismál apríl 2012
Sveinborg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri lagði fram mál. Afgreiðsla trúnaðarmál.
7. 1205152 - fjárhagsaðstoð-áfrýjun
Ingibjörg Gunnarsdóttir félagsráðgjafi lagði fram mál. Afgreiðsla trúnaðarmál.
8. 1205142 - fjárhagsaðstoð-áfrýjun
Sveinborg Kristjánsdóttir félagsmálastjóri lagði fram mál. Afgreiðsla trúnaðarmál.
9. 1107396 - Aðstoð vegna húsnæðis
Vilhjálmur Birgisson mætti á fundinn kl. 16:15 og lagði fram mál. Afgreiðsla trúnaðarmál. Vilhjálmur vék af fundi kl. 16:45.
10. 1006100 - Fjölskylduráð - starfshættir 2010-2014
Næsti fundur fjölskylduráðs er áætlaður 5. Júní. Honum verður flýtt vegna útskriftar í grunnskólum Akraneskaupstaðar. Næsti fundur fjölskylduráðs verður því 4. júní kl. 16:30.
11. 1205131 - Fjölskyldustofa, fjárhagsyfirlit jan-mars 2012
Erindi frestað til 4. júní 2012.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 16:50.
Til baka