ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Nefndir, ráð og fundargerðir
Prenta vefsíðu
Bæjarráð, fundur nr. 3146

Dags. 16.2.2012

3146. fundur bæjarráðs, haldinn  í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18,
 fimmtudaginn 16. febrúar 2012 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:
Guðmundur Páll Jónsson, formaður
Þröstur Þór Ólafsson, aðalmaður
Einar Brandsson, áheyrnarfulltrúi
Guðmundur Þór Valsson, varamaður
Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri
Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari

Fundargerð ritaði:  Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari.

Fyrir tekið:

1.  1111088 - Stuðningur við frumkvöðla og fyrirtæki - reglur Akraneskaupstaðar
 Ingibjörg Valdimarsdóttir formaður starfshóps um atvinnumál mætir á fundinn.
 Atvinnumálanefnd falið að taka reglurnar til nánari skoðunar og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
   
2.  1202073 - Háhiti ehf - fjárveiting
 Bréf Háhita ehf. dags. 14. febrúar 2012 vegna fyrirhugaðrar kynningar á uppsetningu á Calsium Silicat verksmiðju á Íslandi.
 Bæjarráð samþykkir erindið.  Fjárveiting komi af tekjum Háhita ehf.
   
3.  1201211 - Reglur um innkaupakort
 Markmið og greinargerð
 Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
   
4.  1109059 - Almenningssamgöngur milli Vesturlands og höfuðborgarsvæðisins
 Bréf samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi dags. 30. janúar 2012 ásamt samningi um almenningssamgöngur dags. 29.12.2011.
 Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti, enda hafi aðilar orðið sammála um að virða sérstöðu leiðar 57 á svæðinu og að ekki verði gerðar breytingar á þeirri leið, nema með fullu samráði við bæjaryfirvöld á Akranesi og leggur til við bæjarstjórn að hann verði samþykktur.  
   
5.  1201419 - OR - úttektarnefnd
 Tölvupóstur Halls Símonarsonar innri endurskoðanda Reykjvaíkurborgar dags. 29. janúar 2012 og erindisbréf úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur dags. 23. júní 2011.
 Lagt fram.
   
6.  1112153 - Akraneshöfn 2012 - starfshópur v. uppbyggingar
 Erindisbréf fyrir starfshóp vegna uppbyggingar Akraneshafnar.
 Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
   
7.  1105061 - Heiðarbraut 40, breytt deiliskipulag
 Bréf bæjarstjórnar dags. 18. janúar 2012 þar sem afgreiðslu um breytt deiliskipulag á lóð Heiðarbrautar 40, er vísað til nánari umfjöllunar í bæjarráði og tölvupóstur Eiríks Svavarssonar hrl. hjá Draupnir lögmannsþjónusta dags. 24.-26. janúar 2012.
 Afgreiðslu frestað.
   
8.  1201238 - Suðurgata 57 (Landsbankahús) - hugsanleg nýting
 Minnisblað framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu dag.s 31. janúar 2012 og minnisblað umsjónarmanns fasteigna dags. 12. febrúar 2012.
 Lögð fram viðbótargögn varðandi tilboð Landsbankans til Akraneskaupstaðar um kaup á húsnæðinu.  Einar Brandsson óskar eftir frestun á málinu í ljósi mögulegs vanhæfis hans á grundvelli laga þar um.    Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
   
9.  1107396 - Aðstoð vegna húsnæðis
 Trúnaðarmál.
 Bæjarstjóra falið að afgreiða erindið.
   
10.  1201197 - Fráveitugjöld - krafa um endurgreiðslu (v/Grenjar ehf.)
 Bréf lögmannsstofu Árna Ármanns Árnasonar ehf. dags. 17. janúar 2012 í umboði Ingólfs Árnasonar framkvæmdastjóra Grenja ehf.
 Lagt fram.
   
11.  1202047 - Frumvarp til laga - stjórn fiskveiða, mál nr. 202
 Lagt fram.
   
12.  1202057 - Frumvarp til laga - samgönguáætlun 2011-2022 mál nr. 393.
 Lagt fram.
   
13.  1202102 - Frumvarp til laga, mál nr. 342 - fjarskiptaáætlun til tólf ára
 Lagt fram.
   
14.  1202103 - Frumvarp til laga, mál nr. 343 - fjarskiptaáætlun til fjögurra ára
 Lagt fram.
   
15.  1202072 - Frumvarp til laga - stjórn fiskveiða mál. 408
 Lagt fram.
   
16.  1202058 - FVA - ársskýrsla 2011
 Ársskýrsla Fjölbrautaskóla Vesturlands fyrir árið 2011.
 Lagt fram.
   
17.  1201106 - Fjárhagsáætlun til 3 ára - 2013-2015
 Frekari umræður um 3. ára áætlun. Á fundinn mætti Andrés Ólafsson, fjármálastjóri.
 Bæjarráð samþykkir að vísa áætluninni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
   
18.  1202066 - Menningarráð Vesturlands - ársreikningur 2011
 Aðalfundarboð 25. apríl n.k. kl. 14:00 ásamt ársskýrslu 2011.
 Bæjarritara falið að fara með umboð Akraneskaupstaðar á fundinum.
   
19.  1202132 - Gjaldskrá Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar
 Bréf fjármálastjóra dags. 12. febrúar 2012 ásamt gjaldskrá.
 Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
   
20.  1103168 - Strætó bs. - útboð á akstri
 Tölvupóstur Einars Kristjánssonar hjá Strætó bs. dags. 6.-7. febrúar 2012 og yfirlýsing frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og Strætó bs. dags. 14. febrúar 2012.
 Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
   
21.  1106063 - Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2011
 Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar janúar - desember 2011. Bréf deildarstjóra bókhaldsdeildar dags. 15. febrúar 2012 þar sem gerð er grein fyrir rekstrarniðurstöðu fyrir janúar - desember 2011.
 Fyrir fundinum lágu upplýsingar um 12 mánaða bráðabirgðauppgjör A- og B hluta Akraneskaupstaðar.
 Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða í A- hluta sýna halla sem nemur 0,1 millj. kr. á móti áætluðum tekjum í fjárhagsáætlun sem nemur 9,6 millj. kr. Halli A- hluta með fjármagnsliðum nemur 128,6 millj. kr. á móti áætluðum halla sem nemur 40,9 millj. kr. Samstæðan í heild sinni sýnir halla án fjármagnsliða sem nemur 23,2 millj. kr á móti áætlun 24,4 millj. kr. halla, en 153,4 millj. kr. halla með fjármagnsliðum á móti 72,8 millj. kr. halla í fjárhagsáætlun.
 Lagt fram.
   
22.  1202124 - Dreyri - leiðrétting á fasteignagjöldum
 Bréf Hestamannafélagsins Dreyra dags. 7. febrúar 2012 þar sem óskað er eftir endurskoðun á álagningu fasteignagjalda á hesthús félagsmanna í Æðarodda og víðar. Minnisblað fjármálastjóra dags. 13. febrúar 2012.
 Bæjarráð lítur jákvætt á málið en frestar afgreiðslu málsins, þar til skorið hefur verið úr um heimild sveitarfélaga til lækkunar eða veitingu afsláttar vegna álagningar fasteignagjalda á hesthús.
   
23.  1202091 - Hagræðingar í skólakerfinu á Akranesi
 Bréf Skagaforeldra, samtaka foreldra á Akranesi, dags. 6. febrúar 2012 þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að leggja sig fram við að verja grunnþjónustu við börn og barnafjölskyldur á Akranesi í niðurskurðartillögum sínum.
 Lagt fram.
   
24.  1202032 - Grundaskóli - þemavika
 Skjöl sem hópar frá Grundaskóla færðu bæjarstjóra í tilefni á þemaviku skólans og var þemað í þessu tilviki "Ef við værum bæjarstjóri".
 Lagt fram.
   
25.  1202145 - Sorpurðun Vesturlands - aðalfundur
 Aðalfundarboð og dagskrá Sorpurðunar Vesturlands 9. mars 2012 kl. 13:30 að Hótel Hamri ásamt tölvupósti Kristins Jónassonar bæjarstjóra í Snæfellsbæ dags. 14. febrúar 2012.
 Framkvæmdastjóra skipulags- og umhverfisstofu falið að fara með umboð Akraneskaupstaðar á aðalfundinum.
 Einar minnir á áður framkomna tillögu um að einn fulltrúi í stjórninni verði tilnefndur af minnihluta bæjarstjórnar og einn af meirihluta.
   
26.  1202168 - Samband íslenskra sveitarfélaga - XXVI. landsþing
 Tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 14. febrúar 2012 þar sem boðað er til XXVI. landsþings sambandsins 23. mars 2012 á Hótel Reykjavík Natura, nánara boð verður sent síðar.
 Lagt fram.
   
27.  1202003F - Samstarfsnefnd - 147
 147. fundargerð samstarfsnefndar frá 1. febrúar 2012.
 Bæjarráð staðfestir fundargerðina.
 27.1. 1202023 - Kjarasamningur - bókanir
 27.2. 1202027 - Mannauðssjóður
 27.3. 1202025 - Mat á menntun - launahækkun
 27.4. 1202028 - Íþróttamannvirki - starfsmat
 27.5. 1202029 - Málefni fatlaðra - nýráðningar
 27.6. 1106159 - Þjónustu- og upplýsingasvið - starfsmat
 27.7. 1202035 - Búkolla - starfsmat
 27.8. 1202030 - Samstarfsnefnd 2012
   
28.  1202024 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2012
 793. fundargerð frá 27. janúar 2012.
 Lagt fram.
   
29.  1101174 - Menningarráð Vesturlands fundargerðir 2011
 Fundargerðir Menningarráðs Vesturlands númer 58 og 59 frá árinu 2011.
 Lagt fram.
   
30.  1202065 - Menningarráð Vesturlands - fundargerðir 2012
 Fundargerðir Menningarráðs Vesturlands númer 60,61,62 og 63.
 Lagt fram.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:35.



Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008