ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Framkvæmdaráð
Prenta vefsíðu

Framkvæmdaráð

Úr samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar:

70. gr. um framkvæmdaráð:
,,Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosingum kjósa þrjá fulltrúa í framkvæmdaráð til eins árs og jafn marga til vara.

Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í framkvæmdaráð, en varamenn þurfa ekki að vera bæjarfulltrúar. Kosningar í framkvæmdaráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess."

og í 74. gr. segir:

,,Framkvæmdaráð annast stefnumótun og eftirlit með framkvæmdum, rekstri fasteigna og annarra mannvirkja Akraneskaupstaðar.

Framkvæmdaráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í málefnum sem tengjast verklegum framkvæmdum á vegum bæjarins. Framkvæmdaráð hefur yfirumsjón með Framkvæmdastofu Akraneskaupstaðar, sem sér m.a. um undirbúning allra framkvæmda, s.s. framkvæmdir við fasteignir, götur, gangstéttirog stíga, jarðeignir og lönd, gatnahreinsun, leiksvæði og opin svæði, eignaumsýslu, ásamt innkaupum og útboðum vegna framangreindra þátta.

Framkvæmdaráð fer með stjórn Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar ehf. og þeirra verkefna sem félögunum eru falin.

Framkvæmdaráð fer með yfirumsjón með rekstri, viðhaldi og endurbótum fasteigna Akraneskaupstaðar.

Framkvæmdaráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála sbr. 49. gr. samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Framkvæmdaráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála skv. 52. gr. samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn setur framkvæmdaráði erindisbréf."

Framkvæmdaráð hefur heimildir til fjárráðstöfunar samkvæmt fjárhagsáætlun.

í 75. gr. segir:

,,Samkvæmt samþykktum Fasteignafélags Akraneskaupstaðar ehf. og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. fer framkvæmdaráð með stjórn félaganna.

 

Sjá samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008