Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið er stjórnunareining innan Akraneskaupstaðar sem annast starfsemi og rekstur er lýtur að málefnum fjölskyldna. Fjölskyldusvið er fjölskylduráði til ráðgjafar varðandi stefnumótandi ákvarðanir í þeim málaflokkum sem undir hana heyra og ber ábyrgð á faglegri framkvæmd ákvarðana fjölskylduráðs í takt við stefnu ráðsins.
Meginverkefni fjölskyldusviðs lúta að almennri og sértækri fræðslu- og velferðarþjónustu fyrir fjölskyldur á Akranesi.
Helstu þjónustuþættir eru félagsþjónusta sveitarfélagsins, barnaverndarmál, æskulýðs- íþrótta- og forvarnarmál, málefni tónlistarskóla, málefni leikskóla og grunnskóla, málefni aldraðra og fatlaðra og heilbrigðismál.
Hlutverk starfsmanna fjölskyldusviðs er að veita þjónustu í samræmi við gildandi lög og stefnumörkun bæjaryfirvalda á hverjum tíma. Starfsmenn hafa það að markmiði að vinna faglega að lausn mála og veita afbragðsþjónustu sem tekur mið af einstaklingsbundnum þörfum þjónustuþega.
Framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs er Helga Gunnarsdóttir.
Ef upplýsingarnar sem þú leitar að er ekki að finna hér þá er þér velkomið að hafa samband við þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða senda fyrirspurn á netfangið akranes hjá akranes.is