Fundir og fundargerðir bæjarstjórnar
Bæjarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í hverjum mánuði, annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17:00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta og bæjarstjóra og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarstjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.
Fundargerðir funda bæjarstjórnar eru skráðar í sérstaka fundargerðabók auk þess sem þær eru skráðar í tölvu og varðveittar í lausblaðamöppu bæjarstjórnar. Fundargerðir hvers árs eru síðan bundnar inn og frumrit varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akranesi.
Hægt er að hlusta á upptökur að loknum bæjarstjórnarfundum en þær eru aðgengilegar í fundargerð hvers fundar. Smellið hér til að sjá lista yfir fundargerðir bæjarstjórnar.