Skipan bæjarráðs Akraness
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafn marga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Varamenn er heimilt að kjósa úr hópi aðal- og varamanna í bæjarstjórn. Kosningar í bæjarráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.
Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.
Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn, en hefur ekki fengið kjörinn bæjarráðsmann, að tilnefna fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa.
Sjá erindisbréf bæjarráðs
Bæjarráð er skipað eftirtöldum bæjarfulltrúum:
Aðalmenn:
Varamenn: