Bæjarráð Akraness
Um bæjarráð
Um bæjarráðs segir m.a. í samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar:
,,58. gr.
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafn marga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Varamenn er heimilt að kjósa úr hópi aðal- og varamanna í bæjarstjórn. Kosningar í bæjarráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.
Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.
Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn, en hefur ekki fengið kjörinn bæjarráðsmann, að tilnefna fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa."
og í 62. gr. segir m.a.
,,Bæjarráð hefur umsjón og eftirlit með stjórnsýslu bæjarins, fjármálum, rekstri fyrirtækja kaupstaðarins, starfsmannamálum, málum sem falla undir stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 50/1996, lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, málefnum sem falla undir stjórnir byggðasamlaga eða annarra fyrirtækja sem Akraneskaupstaður á aðild að og skulu fundargerðir þeirra lagðar fyrir bæjarráð.
Bæjarráð hefur umsjón með menningarmálum, brunamálum, almannavörnum, hreinlætismálum, skipulags- og byggingarmálum, umhverfismálum, umferðarmálum, atvinnumálum og öðrum þeim verkefnum sem öðrum ráðum eru ekki sérstaklega falin.
Bæjarráð hefur umsjón með sérverkefnum sem heyra undir bæjarstjóra.
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með fjármálastjórn bæjarins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð semur drög að árlegri starfsáætlun og fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi ráða og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Bæjarráð gerir tillögu til bæjarstjórnar um heildarendurskoðun fjárhagsáætlunar. Bæjarráð hefur eftirlit með að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu, svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.
Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sbr. 49. gr., sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu.
Bæjarráð úrskurðar um heimild til endurupptöku mála skv. 52. gr.
Í sumarleyfi bæjarstjórnar annast bæjarráð fullnaðarafgreiðslu þeirra mála sem berast kunna frá ráðum og nefndum.
Bæjarstjórn setur bæjarráði erindisbréf."
Eftirtaldar nefndir og stjórnir sem kjörnar eru af bæjarstjórn heyra undir bæjarráð:
- Stjórn Akranesstofu
- Stjórn Dvalarheimilisins Höfða
- Stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar
- Skipulags- og umhverfisnefnd
- Almannavarnanefnd
- Samstarfsnefnd um kjaramál
- Kjörstjórn við Alþingis- og sveitarstjórnarkosningar
- Undirkjörstjórnir við Alþingis- og sveitarstjórnarkosningar
Sjá nánar Samþykktir um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.