10. maí 2012
Tímabundið starf á Safnasvæðinu á Akranesi
Laus er til umsóknar tímabundin staða á Safnasvæðinu á Akranesi.
Um er að ræða 100% starf í 6 mánuði með möguleika á framlengingu. Vinnutími er að hluta til á helgum og utan hefðbundins dagvinnutíma.
Helstu verkefni
Leiðsögn um Safnasvæðið
Skipulag viðburða á Safnasvæði
Skráning safnmuna
Texta- og sýningagerð
Ýmis verkefni sem tengjast stofnun og starfsemi hins keltneska fræðaseturs á Akranesi
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Mjög góð ritfærni í íslensku og góð kunnátta í ensku
Góð þekking á tölvum og hugbúnaði
Góð þekking á sögu Akraness og nágrennis
Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til 24. maí næstkomandi. Ráðið verður í starfið frá 1. júní 2012.
Umsóknareyðublað
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknir sem greina frá menntun og fyrri störfum skulu berast skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 300 Akranes, netfang akranes@akranes.is.
Nánari upplýsingar veitir Jón Allansson, forstöðumaður í síma 431 1255, netfang jon.allansson@akranes.is.