ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Tilkynningar
Prenta vefsíðu
15. maí 2012

Laust starf - starfsmaður í þjónustumiðstöð/Dýraeftirlit

Akraneskaupstaður auglýsir eftir starfsmanni til starfa í þjónustumiðstöð.

Staðan heyrir undir rekstrarstjóra gatnakerfis sem er yfirmaður í þjónustumiðstöð.


Um er að ræða fullt starf.

Starfið flest m.a. í:

 Dýraeftirliti skv. nánari skilgreiningu í erindisbréfi. Áætlað er að dýraeftirlitið sé um 50 % starfsins.

 Ýmis almenn verkefni er snúa að viðhaldi og rekstri gatna-, gangstétta- og stígakerfi kaupstaðarins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

 

 Gerð er krafa um alhliða góða verkkunnáttu og verkstjórnarhæfni.

 Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og einhverja reynslu af dýrahaldi.

 Lögð er áhersla á jákvæðni og vilja til að takast á við krefjandi verkefni.

 Frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar.

 Metnaður, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.

 

Umsækjandi þarf að leggja sér til bifreið sem hentar vegna dýraeftirlits. Greitt verður fyrir aksturinn skv. sérstöku samkomulagi þar um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir

framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu eða verkstjóri gatna- og tækjasviðs í síma 433 1000

Umsóknarfrestur er t.o.m. 31. maí 2012

Umsækjendum er bent á að sækja um rafrænt eða senda skriflegar umsóknir til skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16 - 18, 300 Akranes.

 

Umsóknareyðublað

 

Framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008