ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Frístundaklúbburinn í Þorpinu:

Sumarstarf Frístundaklúbbsins í Þorpinu er ætlað börnum og ungmennum á aldrinum 10-15 ára (f. 1997-2002) sem þurfa á stuðningi og hvatningu að halda við tómstundaiðju yfir sumartímann.

Sumaropnun í Þorpinu er frá og með 6. júní til og með 29. júní. Opið er frá kl. 8:00 til 16:00. Hægt er að skrá sig í heila viku eða einstaka daga og einnig á heila eða hálfa daga (8-12 og 12-16). Sjá líka skráningablað (linkur)

Í ágúst verður gerð tilraun með að hafa opið  allan daginn frá og með 13. ágúst til og með 21. ágúst ef næg þátttaka fæst.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá sem miðast við áhugamál og þarfir þátttakenda. Náið  samstarf er við Vinnuskólann.

Umsjón með starfinu hefur  Ruth Jörgensdóttir Rauterberg, þroskaþjálfi, og starfsmenn verða Auður Freydís Þórsdóttir, Maríanna Pálsdóttir og Valgeir Valdi Valgeirsson.

Nánari upplýsingar hjá umsjónarmanni : ruth.jörgensdottir@akranes.is  eða í síma 433-1250.

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008