ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

SUMARSTARF BARNA OG UNGLINGA 2012

 

Leikjanámskeið Skátafélags Akraness og Akraneskaupstaðar:

Leikjanámskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 6-10 ára (fædd árið 2002-2006) og hófst fyrsta námskeiðið mánudaginn 11. júní nk.

Bæklingur var borinn út til framangreindra aldurshópa en í honum er skráningarblað sem foreldrar fylla út og mæta með við upphaf námskeiðs þar sem formleg skráning fer fram.

Allar nánari upplýsingar eru að fá í símum 431 1727 og 896 1728.

Sjá nánar í bæklingi. 

Sumarnámskeið Íþróttabandalags Akraness:

Á vef Íþróttabandalags Akraness er að finna yfirlit yfir það helsta sem er í boði varðandi sumarstarf fyrir börn og unglinga. Smellið hér

Frístundaklúbburinn í Þorpinu:

Sumarstarf Frístundaklúbbsins í Þorpinu er ætlað börnum og ungmennum á aldrinum 10-15 ára (f. 1997-2002) sem þurfa á stuðningi og hvatningu að halda við tómstundaiðju yfir sumartímann.

Sumaropnun í Þorpinu er frá og með 6. júní til og með 29. júní. Opið er frá kl. 8:00 til 16:00. Hægt er að skrá sig í heila viku eða einstaka daga og einnig á heila eða hálfa daga (8-12 og 12-16).

Sjá nánar.

Gaman saman dagar í júní:

Frístundaklúbburinn í Þorpinu býður krökkum fædd 1999-2002 að taka þátt í skemmtilegri dagskrá.

Sjá nánar.

Ýmsar upplýsingar:

Sjá upplýsingar um vetrarstarf Frístundaklúbbsins- smellið hér 

Sjá upplýsingar um Vinnuskólann - smellið hér

Sjá upplýsingar um opnunartíma stofnana m.a. íþróttamannvirkja - smellið hér

Sjá upplýsingar um ,,Gaman saman dagar" í júní 2012. Börn fædd 1999-2002 - smellið hér

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008