ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Álagning gjalda fyrir árið 2012

Á fundi bæjarstjórnar Akraness þann 17. janúar 2012 voru samþykktar eftirfarandi forsendur til grundvallar álagningu fasteigna- og þjónustugjalda á árinu 2012:

Álagning útsvars:

Álagning útsvars á árinu 2012 verði hámarksálagningarprósenta í samræmi við lög þar um, nú 14,48% (Samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness 13. des. 2011).

Fasteignaskattur:

0,3611 % af álagningastofni íbúðarhúsa ásamt lóðarleiguréttindum erfðafestulanda og jarðeigna skv. a-lið 3. greinar laga um tekjustofna sveitarfélaga.

1,32% af öllum fasteignum skv. b-lið 3. greinar laga um tekjustofna sveitarfélaga.
1,65% af öllum öðrum fasteignum skv. c-lið 3. greinar laga um tekjustofna sveitarfélaga.

Sorphreinsunargjald vegna íbúðarhúsnæðis verði kr. 14.950.- fyrir hverja íbúð miðað við tvær sorptunnur og sorpeyðingargjald verði kr. 12.750.-  Gjöldin verði innheimt með fasteignagjöldum.

Lóðarleiga af nýjum lóðum og endurnýjuðum samningum verði 1,598% af fasteignamatsverði atvinnulóða og 1,055% af fasteignamatsverði íbúðarhúsalóða og innheimt með fasteignagjöldum.

Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2012 verði 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september, 15. október en eindagi gjaldanna verði 30 dögum síðar eða næsta virkan dag beri hann upp á helgidag.

Veitt verði ívilnun á fasteignaskatti á árinu 2012, til elli- og örorkulífeyrisþega í samræmi við sérstakar reglur bæjarstjórnar um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. 

Gjöld sem nema lægri upphæðum en kr. 12.000.- í heildarálagningu skal innheimta með einum gjalddaga á ári þann 15. apríl.

Orkuveita Reykjavíkur

Orkuveita Reykjavíkur annast  innheimtu vatnsgjalds og fráveitugjalds og eru þau gjöld því ekki inni í álagningu sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag þeirrar innheimtu er að finna á vef Orkuveitunnar.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008