Hátíðarhöld á 17. júní og Norðurálsmótið á Akranesi 2011
Hátíðarhöld þjóðhátíðardagins 17. júní á Akranesi verða einstaklega glæsileg í ár enda von á fjölda gesta á Skagann í tilefni af Norðurálsmótinu í fótbolta sem hefst sama dag. Dagskráin hefst að morgni 17. júní með þjóðlegri stemningu á Safnasvæðinu frá kl. 10:00 til 14:00 en kl. 14:00 verður gengið í skrúðgöngu frá Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum og í Garðalund þar sem hátíðar- og skemmtidagskrá fer fram á milli kl. 14:30 og 16:30. Um kvöldið verður svo skemmtun og stuð í Akraneshöllinni frá kl. 20:30 til 22:30. Norðurálsmótið er svo í gangi alla helgina og lýkur á sunndaginn.
Fimmtudagur 16. júní
07:00 Safnaskálinn opnaður. Morgunverður í Garðakaffi. Lokað kl. 22:00
Föstudagur 17. júní
07:00 Safnaskálinn opnaður. Morgunverður í Garðakaffi. Skálinn verður opinn til miðnættis.
10:00-14:00 Þjóðlegur morgunn og „Þjóðhátíðarmorgunverður“ á Safnasvæði
Opið og ókeypis aðgangur í söfnin
Þjóðlegt hlaðborð í Garðakaffi
Félagar úr Glímudeild Ungmennafélagsins Skipaskaga sýna glímubrögð
Gestir sem mæta í þjóðbúningi fá óvæntan glaðning
12:30 - 13:30 mun Gestur Friðjónsson leika á harmoniku í Garðakaffi
Boðið verður upp á andlitsmálun, ekta 17. júní blöðrur og nammi til sölu og fleira skemmtilegt
Hestamannafélagið Dreyri verður á svæðinu og félagar þess teyma hesta undir börnum á öllum aldri
11:00 Safnaskálinn á Safnasvæðinu – „Tón-list“ - Myndlistarsýning Bjarna Þórs Bjarnasonar, myndlistarmanns opnuð í Safnaskálanum
11:00 Garðakaffi á Safnasvæðinu – Söngtríóið „Stúkurnar“
Söngtríóið „Stúkurnar“, sem skipað er söngkonunum Björgu Bjarnadóttur, Dallilju Sæmundsdóttur og Jónínu Björgu Magnúsdóttur flytur nokkur lög.
10:00 – 12:00 Stúkuhúsið á Safnasvæðinu - Söngvarakeppni Akraness 2011 – undankeppni
Umsjón með keppninni hefur söngkonan Hulda Gests. Lista yfir lögin, sem hægt er að syngja má skoða með því að smella hér. Allir krakkar geta verið með!
10:00 – 17:00 Fróðá á Safnasvæðinu – „Snjór“
Ljósmyndasýning Friðþjófs Helgasonar opnuð í Fróðá á Safnasvæðinu. Sýningin er opin alla helgina.
11:15 Ráðhús Akraneskaupstaðar við Stillholt - Skrúðganga í tilefni af Norðurálsmóti
Skrúðganga frá Ráðhúsi Akraneskaupstaðar við Stillholt og á Jaðarsbakka þar sem Norðurálsmótið verður sett í Akraneshöllinni.
12:00 Setning Norðurálsmótsins í Akraneshöllinni
13:00 Keppni 1. mótsdags hefst á Norðurálsmótinu. Áætlað er að keppni dagsins ljúki um kl. 19:00.
13:00 Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju
Prestur, Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
Hátíðarræða: Sigurður Trausti Karvelsson, nýstúdent
14:00 -17:00 Kaffisala Kirkjunefndar Akraneskirkju í safnaðarheimilinu Vinaminni.
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópransöngkona og bæjarlistamaður Akraness árið 2011 kemur fram og syngur perlur íslenskrar tónlistar og ættjarðarlög, kl. 14:00, 15:15 og 16:15.
14:00 Skrúðganga frá Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum í Garðalund
Skrúðgangan fer frá Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum kl.14:00. Gangan fer um Innnesveg, Garðagrund, Þormóðsflöt og Ketilsflöt í Garðalund þar sem dagskrá þjóðhátíðardagsins fer fram. Skólahljómsveit Akraness fer fyrir göngunni, ásamt fánaberum frá Skátafélagi Akraness. Stjórnandi sveitarinnar er Halldór Sighvatsson.
14:30- 16:30 Hátíðardagskrá og fjölskylduskemmtun í Garðalundi
Fánahylling í umsjón Skátafélags Akraness. Blásarar úr Skólahljómsveit Akraness leika undir.
Ávarp Árna Múla Jónassonar, bæjarstjóra á Akranesi.
Ávarp fjallkonu – Sigrún Eva Ármannsdóttir, fegurðardrottning Íslands 2011
Þjóðsöngurinn - Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópransöngkona og bæjarlistamaður Akraness 2011 syngur, undirleik annast Sveinn Arnar Sæmundsson.
Að lokinni hátíðardagskrá tekur við fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna í Garðalundi - hoppkastalar, andlitsmálun, leikir og skemmtun, m.a. Sveppi og Villi, Skoppa og Skrítla, hinir frábæru trúðar Nael og Mummi sýna listir sínar, hinn eini og Jóhanna Guðrún tekur lagið, Freestyle undir stjórn Írisar Óskar og úrslitin í Söngvarakeppni Akraness 2011 fara fram. Undankeppnin fer fram í Stúkuhúsinu á Safnasvæðinu á milli kl. 10:00 og 12:00 sama dag en fimm hlutskörpustu söngvararnir úr undankeppninni komast í úrslitin. Allir krakkar geta verið með!
14:30 – 16:30 Garðalundur - „Bekkpressugrill“ á vegum Kraftlyftingafélags Akraness
Kraftlyftingafélag Akraness býður upp á svokallað. „bekkpressugrill“ þar sem grillaðar verða pylsur og seldar gestum og gangandi í fjáröflunarskyni fyrir félagið. Félagið verður svo með bekkpressubekk á staðnum og býður fólki að prófa að lyfta. Þeir karlar sem taka 100 kg í bekknum og þær konur sem taka 50 kg fá svo fría pylsu og kók að launum.
14:30 – 16:30 Garðalundur – Leikjaland!
„Alltaf Gaman“ verður með alls konar leiki fyrir alla fjölskylduna á svæðinu hjá „aparólunni“ við tjarnirnar. Boðið verður upp á eftirtalda leiki fyrir alla fjölskylduna: Kubb á tveimur kubbvöllum, Munkleik, kastleiki, hreystibraut og Hornareiptog. Öllum er frjálst að vera með og aðgangur er ókeypis!
Fólki er bent á bílastæði við golfvöll, á Safnasvæðinu og í nýja hverfinu við Garðalund.
14:30 – 16:30 Garðalundur - Listasmiðja!
Gerumst listaspæjarar- málum, teiknum og litum- rannsökum skógræktina og skrásetjum niður hvern krók og kima með málverkum! Eigum saman skemmtilega stund úti í skógi með pensil í hönd. Umsjón hugMYND myndlistarmiðstöð. Aðgangur ókeypis! Fyrir alla fjölskylduna!
16:00 Listasetrið Kirkjuhvoll - „Bjartir dagar“
Halldóra Helgadóttir opnar sýningu á olíumálverkum og vatnslitamyndum í Listasetrinu Kirkjuhvoli.
Sýningin stendur til 26. júní og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14:00 – 17:00.
20:30 – 22:30 Kvöldskemmtun í Akraneshöll
Todmobile og Bubbi Morthens og Sólskuggarnir
Laugardagur 18. júní
07:00 Safnaskálinn opnaður. Morgunverður í Garðakaffi. Skálinn verður opinn til miðnættis.
Norðurálsmótið
09:00 - 13:00 Keppni 2. mótsdags - fyrri hluti
13:00 - 17:00 Keppni 2. mótsdags - seinni hluti
19:30 - 20:30 Kvöldskemmtun í Akraneshöll
21:30 - 22:00 Fararstjórafundur í Íþróttamiðstöð
22:00 - 23:30 Foreldrakaffi í matsal Íþróttamiðstöðvar, í boði foreldra KFÍA
10:00 – 16:00 Garðalundur – Leikjaland á Norðurálsmóti
Akraneskaupstaður og stelpurnar hjá „Alltaf Gaman“ bjóða gestum og gangandi í alls konar leiki fyrir alla fjölskylduna í Garðalundi. Tveir fótboltavellir verða nálægt innganginum. Annar völlurinn er fyrir litla krakka en hinn fyrir stóra. Lítil mörk verða fyrir þau litlu og stærri mörk á hinum vellinum. Á grassvæðinu við blakvöllinn verða kastleikir s.s. kubb, skeifukast, hreystibraut o. fl. Þá verður boðið upp á Frisbígolf! Öllum er frjálst að vera með og aðgangur er ókeypis!
10:00 – 16:00 Garðalundur - Listasmiðja!
Gerumst listaspæjarar- málum, teiknum og litum- rannsökum skógræktina og skrásetjum niður hvern krók og kima með málverkum! Eigum saman skemmtilega stund úti í skógi með pensil í hönd. Umsjón hugMYND myndlistarmiðstöð. Aðgangur ókeypis! Fyrir alla fjölskylduna!
10:00 – 16:00 Leikjaland við Langasand á Norðurálsmóti
Akraneskaupstaður og stelpurnar hjá „Alltaf Gaman“ bjóða gestum og gangandi í alls konar leiki fyrir alla fjölskylduna á svæðinu neðan við Akraneshöll, við hinn nýja og glæsilega sólpall á Jaðarsbökkum og á Langasandinum sjálfum. Settar verða upp leikjastöðvar þar sem m.a. verður boðið upp á eftirtalda leiki: 2 kubbavelli, knattþrautir, skotboltasvæði/höfðingjaleik, hornareiptog, kastleiki s.s. skeifukast, skóflur og fötur fyrir Langasand, krokket fyrir Langasand og grassvæðið, sippibönd og snú-snúbönd, teygjutvist, krítar fyrir stéttarnar og Mikadó. Öllum er frjálst að vera með og aðgangur er ókeypis!
11:00 - 14:00 Bókasafn Akraness og Ljósmyndasafn Akraness
Heitt á könnunni og aðgangur að netkaffi, dagblöðum og tímaritum. Í safninu stendur yfir ljósmyndasýningin „Frá sjónarhóli Röggu á Grund“. Myndirnar eru sýndar með myndvarpa í Svöfusal, námsveri safnsins. Einnig eru til sýnis ljósmyndir frá Norðurálsmótunum 2009 og 2010.
12:00 – 16:00 Grasflöt við Sjúkrahúsið á Akranesi – Flóamarkaður Skagans - „Úti á túni – uppi á borði!“
Á þessum flóamarkaði geta allir sem vilja pantað borð og selt allt á milli himins og jarðar. Skagamenn og gestir á Norðurálsmóti eru hvattir til að mæta – og prútta! Áhugasömum er bent á að hafa samband við Kristbjörgu Traustadóttur í síma 894-4070 eða á netfangið bkt33@simnet.is. Að auki geta þeir sem vilja mætt með sitt eigið borð og selt sinn varning.
10:00 – 17:00 Fróðá á Safnasvæðinu – „Snjór“
Ljósmyndasýning Friðþjófs Helgasonar. Sýningin er opin alla helgina.
10:00 – 17:00 Safnaskálinn á Safnasvæðinu – „Tón-list“ - Myndlistarsýning Bjarna Þórs Bjarnasonar, myndlistarmanns
14:00 - 17:00 Listasetrið Kirkjuhvoll - „Bjartir dagar“
Málverkasýning Halldóru Helgadóttur í Listasetrinu Kirkjuhvoli.
17:15 Akranesvöllur - Meistaraleikur Steina Gísla.
Gamlir félagar Sigursteins Gíslasonar úr ÍA og KR hafa skipulagt fjáröflunarleik honum til stuðnings. Sigursteinn glímir við krabbamein í nýrum og lungum og sér fram á mikla baráttu og er hugmyndin með leiknum að safna fé honum til stuðnings. Sigursteinn var sigursæll leikmaður og vann alls fimm Íslandsmeistaratitla með ÍA og fjóra með KR en er nú þjálfari Leiknis í Breiðholti. Leikurinn fer fram á Akranesi á laugardag og hefst kl. 17:15 og taka gamlir liðsfélagar Sigursteins fram skóna og leika honum til stuðnings og kostar þúsund krónur inn. Miðinn gildir einnig sem happdrættismiði og er hverjum og einum frjálst að kaupa einn eða fleiri miða.Einnig er tekið á móti frjálsum framlögum á reikningi 0330-26-2569 og kennitölu 250668-5549.
20:00 Miðnæturgolfmót á Garðavelli
Opið golfmót þar sem ræst verður út á öllum teigum kl. 20:00 og leikið fram á nótt. Veglegir vinningar í boði! Punktakeppni með forgjöf og eins verða veitt verðlaun fyrir 3 bestu skorin án forgjafar.
22:00 Eyjólfur Kristjánsson í Garðakaffi á Safnasvæðinu.
Aðgangur ókeypis.
Sunnudagur 19. júní
07:00 Safnaskálinn opnaður. Morgunverður í Garðakaffi. Skálinn verður opinn til kl. 17:00.
Norðurálsmótið
09:00 - 11:00 Keppni 3. mótsdagsins, síðasta umferð allra deilda
11:00 - 13:00 Grillveisla á aðalleikvangi Akraness
11:30 - 12:00 Landsliðið - Pressuliðið keppa á Akranesvelli
13:15 - 14:15 Verðlaunaafhending og mótsslit í Akraneshöll
10:00 – 17:00 Fróðá á Safnasvæðinu – „Snjór“
Ljósmyndasýning Friðþjófs Helgasonar. Sýningin er opin alla helgina!
10:00 – 17:00 Safnaskálinn á Safnasvæðinu – „Tón-list“ - Myndlistarsýning Bjarna Þórs Bjarnasonar, myndlistarmanns
14:00 - 17:00 Listasetrið Kirkjuhvoll - „Bjartir dagar“
Málverkasýning Halldóru Helgadóttur í Listasetrinu Kirkjuhvoli.
15:00 „Rekstrarsjón“ á Gamla Kaupfélaginu – Unglingahljómsveitin Dúmbó leikur og syngur!
Hljómsveitin Dúmbó kemur saman á ný í upphaflegri mynd og spilar í tilefni af því að liðin er hálf öld frá því að þessi ástsæla hljómsveit kom saman í fyrsta sinn. Hljómsveitina skipa þau Ólöf Gunnarsdóttir, söngur, Trausti Finnsson, píanó, Gunnar Sigurðsson, trommur, Gísli S. Einarsson, gítar, Jón Trausti Hervarsson, saxófónn og Leifur Magnússon á kontrabassa. Boðið verður upp á vöfflur með sultu og rjóma, kaffi og kakó í tilefni dagsins og í boði Akraneskaupstaðar – rétt eins og á fyrsta balli sveitarinnar fyrir liðlega 50 árum síðan.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar sem hugsanlega geta orðið. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði helgarinnar ásamt upplýsingum um ýmsa þjónustu á Akranesi verður að finna í fylgiblaði með Skessuhorni sem gefið verður út í vikunni fyrir hátíðina og dreift í öll hús á Akranesi og einnig til allra gesta á Norðurálsmótinu. Blaðið er gefið út í samstarfi við KFÍA en Skessuhorn annast alla vinnslu blaðsins.
Gleðilega Þjóðhátíð og góða skemmtun á Norðurálsmótinu!
Akraneskaupstaður