Málefni fatlaðra
Ferðaþjónusta fatlaðra einstaklinga
Á Akranesi er rekin ferðaþjónusta fyrir fatlaða frá Dvalarheimilinu Höfða. Ferðaþjónusta fatlaðra er ætluð fyrir þá sem ekki geta nýtt sér allmenningsfarartæki til að geta stundað atvinnu, hæfingu, skóla eða farið til læknis. Félagsmálastjóri úrskurðar um þá einstaklinga sem eiga rétt á þjónustu.
Fjöliðjan, Vinnu- og hæfingarstaður, Dalbraut 10
Fjöliðjan er vinnustaður þar sem boðið er upp á verndaða vinnu og hæfingu fyrir þá sem þess þurfa og leita eftir þjónustu. Eingöngu fatlaðir einstaklingar eiga kost á starfi hjá Fjöliðjunni. Akraneskaupstaður er handhafi starfsleyfis vinnustaðarins en fulltrúi hans í stjórn er félagsmálastjóri bæjarins.
Forstöðumaður Fjöliðjunnar er Þorvarður B. Magnússon. Sími 431 2994.
Netfang: fjolidjan@aknet.is