Tómstunda- og menningarhús ungs fólks
Skólabraut 9 Akranesi – sími 431-1775
Tómstundahúsið er afþreyingarstaður sem ætlaður er fólki frá 16 ára aldri. Þar er rekið kaffihús þar sem hægt að fá kaffi, kakó, gos og ýmis konar bakkelsi og sælgæti. Þar er einnig hægt að fá afnot af tölvum og fría internernettengingu. Þar eru ADSL tengingar við öll borð og því hægt að koma með sína eigin tölvu og tengjast. Í húsinu er DVD- spilari, sjónvarp, heimabíó og boðið er upp á fjölda sjónvarpsrása. Þá eru á staðnum geislaspilari, mixer, míkrófónar, karókí og mjög öflugt hljómkerfi.
Markmið með rekstri hússins er að bjóða ungu fólki upp á aðstöðu til skemmtunar og dægradvalar án vímuefna og tóbaks. Leitast er við að ungt fólk skipuleggi sem mest starfsemi hússins, sýni frumkvæði og skapandi starf.
Húsið er rekið af Rauða kross deildum á Vesturlandi í samvinnu við Akraneskaupstað.
Góð samvinna er við sambærileg hús víða um land og aðra aðila sem standa að forvarnastarfi í bænum og á landsvísu.
Húsið er opið sem hér segir:
Mánudaga - þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 14 - 23
Föstudaga frá kl. 14 – 02
Laugardaga frá kl. 16 – 23:30
Sunnudaga frá kl. 16 – 23
Í tengslum við húsið er boðið upp á ýmis konar hópastarf. Ekki er krafist gjalds fyrir þátttöku.
Fólk er velkomið inn í starfandi hópa hvenær sem er.
Í Íþróttahúsinu við Vesturgötu eru tímar í eróbik og tækjum sem hér segir:
Mánudaga – miðvikudaga og föstudaga frá kl. 10 – 12
Þriðjudaga frá kl. 16:30 – 18
Fimmtudaga frá kl. 15:45 – 17
Föstudaga frá kl. 15 – 16
Myndlistarhópur starfar í húsinu á þriðjudagskvöldum frá kl. 20 –22:30
NA fundir eru í húsinu á fimmtudagskvöldum frá kl. 20:30 – 21:30
URKÍ fundir eru í húsinu á boðuðum tímum.
Tómstundahúsið stendur félögum og félagasamtökum og öðrum hópum opið til fundarhalda þar sem aðstaða er mjög góð í húsinu.