Ákveðið hefur verið að gera minniháttar breytingu á akstursleið strætisvagnsins sem ekur á milli Akraness og Reykjavíkur. Upphaf akstursleiðar verður frá Akratorgi í stað kaffihússins Skrúðgarðsins við Kirkjubraut. Leið vagnsins hefur verið um Innnesveg og Þjóðbraut en verður nú Innnesvegur, Bresaflöt, Ketilsflöt, Þjóðbraut. Búið er að koma fyrir vagnstæði og biðskýli fyrir farþega við Bresaflöt sem mun nýtast bæði fyrir Reykjavíkurvagninn og Akranesstrætó. Breytingin tekur gildi miðvikudaginn 10. feb. n.k. (sjá nánar hér).
Framkvæmdastjóri Skipulags- og umhverfisstofu Akraneskaupstaðar