ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Rauðhetta í Garðalundi á Akranesi þriðjudaginn 9. júní nk.

8. júní 2009

Þriðjudaginn 9. júní sýnir Leikhópurinn Lotta barnaleikritið Rauðhettu á Akranesi. Sýnt er í Garðalundi og hefst sýningin klukkan 18:00. Sýnt er utandyra og er því um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að sitja á og hlýja sér ef kalt er í veðri.

Verkið skirfaði Snæbjörn Ragnarsson og er það byggt á klassísku ævintýrunum um Rauðhettu og úlfinn, Hans og Grétu og Grísina þrjá. Sögurnar eru fléttaðar saman á nýstárlegan og skemmtilegan hátt svo úr verður stærðarinnar ævintýr. Snæbjörn hefur einnig samið lög fyrir verkið ásamt bróður sínum Baldri og Gunnari Ben.

Þetta er þriðja sumarið sem Leikhópurinn Lotta tekur sig til og setur upp barnasýningu. Sumarið 2007 var hið sívinsæla verk Torbjörns Egners, Dýrin í Hálsaskógi, sett á svið og í fyrra var það Galdrakarlinn í Oz í nýrri leikgerð Ármanns Guðmundssonar.

Miðaverð er óbreytt frá fyrri árum en miðinn kostar 1.500 krónur fyrir fullorðna og 1.000 krónur fyrir börn. Þetta er því ódýr fjölskylduskemmtun sem enginn má láta framhjá sér fara.

Nánari upplýsingar um sýningarplan má finna á heimasíðu hópsins www.leikhopurinnlotta.is og í síma 770-0403.

 

tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008