Bæjarstjórn Akraness samþykkti í gær að næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar verði þriðjudaginn 26. ágúst n.k. Bæjarráði var jafnframt falin fullnaðarafgreiðsla mála í samræmi við 54. gr. um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.
Þá fór fram á fundinum kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar og kosning þriggja bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs. Forseti var kjörinn Sveinn Kristinsson og varaforseti Kristján Sveinsson. Í bæjarráð voru kjörnir til eins árs Sveinn Kristinsson, Guðmundur Páll Jónsson og Gunnar Sigurðsson.