Nemendur í 9. bekk Brekkubæjarskóla hafa s.l. skólaár verið í samskiptum við jafnaldra sína frá Fjóni í Danmörku. Í síðustu viku komu svo 25 danskir nemendurnir í heimsókn á Akranes en þeir koma til með að dvelja á Íslandi í eina viku. Tilgangur ferðarinnar var m.a að kynnast skólanum og skoða bæjarfélagið.
Farið var m.a. með krakkana á Safnasvæðið að Görðum og í heimsókn á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. Einnig var farið með þau í skoðunarferð um bæinn undir leiðsögn Lars H. Andersen. Nemendur Brekkubæjarskóla koma svo til með að heimsækja vini sína til Danmerkur í ágúst.