Eins og kunnugt er, varð eldur laus í anddyri leikskólans Teigasels við Laugarbraut síðastliðið laugardagskvöld. Anddyrið er býsna illa farið og verður farið í að endurnýja það strax á mánudagsmorgun. Á meðan framkvæmdir standa yfir verður gengið um Háteig, Miðteigsmegin.